Fara í efni

Kynningarfundur

29.04.2024
Yfirlitsmynd af deiliskipulagstillögu fyrir Tjaldsvæðið við Sauðárgil

Skipulagsnefnd Skagafjarðar hefur ákveðið að halda kynningarfund vegna deiliskipulagstillögu fyrir Tjaldsvæðið við Sauðárgil og aðalskipulagsbreytingar á Afþreyingar- og ferðamannasvæði við Sauðárgil, AF-402 þriðjudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 16-18 í stóra salnum að Sæmundargötu 7A á Sauðárkróki (Hús frítímans).

Athugasemdarfrestur við bæði málin á Skipulagsgáttinni verður framlengdur um 2 vikur eða frá 1. maí 2024 til og með 16. maí 2024.

Tengill á bæði málin á Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar:

https://www.skipulagsgatt.is/issues/2023/515
https://www.skipulagsgatt.is/issues/2023/516