Fara í efni

Hækkun á niðurgreiðslum til dagforeldra

19.04.2017
Börn að leik

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar eftir samstarfi við aðila sem gætu hugsað sér að  taka börn í daggæslu á einkaheimili á Sauðárkróki eða næsta nágrenni.

Sveitarfélagið hefur samþykkt 20% hækkun á niðurgreiðslum og reglur sem tryggja dagforeldrum niðurgreiðslur sem svarar þremur börnum kr. 64.922,- á mánuði vegna þriggja barna í 11 mánuði á ári. Þetta er gert með það að markmiði að auka atvinnuöryggi dagforeldra.

Sveitarfélagið vill leita frekari leiða til að gera starfið meira aðlaðandi. Í því sambandi viljum ræða við þau sem hafa áhuga á þessu starfi. Það gætu til dæmis verið aðilar sem hafa áhuga á að starfa saman að daggæslu.

Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi verktakar sem taka að sér daggæslu barna á heimili sínu. Félags- og tómstundanefnd veitir starfsleyfi að vissum skilyrðum uppfylltum og fjölskyldusvið annast niðurgreiðslur vistgjalds,veitir dagforeldrum ráðgjöf og stuðning og sinnir eftirliti með starfseminni eins og kveðið er á um í reglugerð velferðarráðuneytisins nr. 907 frá árinu 2005. Reglugerðina er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is  undir

• Þjónusta/<Velferð og fjölskylda/-Þjónusta við börn og unglinga/-Dagvistun

Þau sem eru áhugasöm að vita meira um málið hafi samband í síma 455 6000 við Herdísi Á Sæmundardóttur, sviðsstjóra, has@skagafjordur.is eða Hrafnhildi Guðjónsdóttur, félagsráðgjafa, hrafnhildurg@skagafjordur.is .