Fara í efni

Dagur kvenfélagskonunnar er í dag

01.02.2024

Í dag, 1. febrúar, er Dagur kvenfélagskonunnar og jafnframt stofndagur Kvenfélagasambands Íslands.

Sveitarfélagið Skagafjörður sendir bestu kveðjur til allra meðlima kvenfélaga Skagafjarðar í tilefni dagsins með þökk fyrir ómetanleg og óeigingjörn störf í gegnum árin.

Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar 1930 og eru því liðin 94 ár frá stofnun sambandsins. Árið 2010 var 1. febrúar formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár.