Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál - Borgarmýri 1

03.04.2024

Tillaga að deiliskipulagi - Borgarmýri 1, Sauðárkróki.

Málsnúmer 359/2024 í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is.

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 25. fundi sínum þann 18. mars 2024 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Borgarmýri 1 á Sauðárkróki í samræmi við 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðamörkum Borgarmýrar 1, með breytingu á afmörkun sem samþykkt var á fundi skipulagsnefndar þann 7. mars 2024. Aðliggjandi lóðir eru Borgarmýri 1A að austan og Borgarmýri 3 að sunnanverðu. Aðkoma er af Víðimýri um tvær innkeyrslur, eins og sýnt er á skipulagsuppdrætti. Bílastæði hafa verið vestan við núverandi hús. Svæðið er 3.590 m² að stærð. Innan svæðisins er ein bygging, 772,5 m² iðnaðarhús, byggt árið 1968, auk tengibyggingar. Starfsemin var endanlega flutt í Borgarmýrina af Aðalgötunni á Króknum árið 1969 og hefur því verið þar í rúma hálfa öld.

Skipulagsuppdráttur nr. DS-01, dags. 12.03.2024, unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni sýnir lóðamörk, aðkomu og bílastæði og byggingarreiti innan á Borgarmýri 1, ásamt helstu byggingarskilmálum.

Tillagan er auglýst frá 3. apríl til og með 17. maí 2024. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 359/2024. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá kl. 10-12 og kl. 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillögurnar. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is í síðasta lagi 17. maí 2024. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar

Hér að neðan má sjá meðfylgjandi gögn:

Aðaluppdráttur - Borgarmýri 1, Sauðárkróki 

Tillaga að deiliskipulagi - Borgarmýri 1, Sauðárkróki