Fara í efni

Álagning fasteignagjalda í Skagafirði árið 2024

24.01.2024
Álagning – breytingar – innheimta

Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða; í gegnum Íbúagáttina, símleiðis í síma 455 6000 eða með tölvupósti á netfangið innheimta@skagafjordur.is.


Álagningarseðlar

Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis nema þess sé óskað. Vinsamlegast sækið um það fyrir 26. janúar 2024. Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Íbúagáttinni og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“.


Gjalddagar

Gjalddagar fasteignagjaldanna verða tíu frá 1. febrúar til og með 1. nóvember 2024. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí 2024 eða fyrr séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr. Sækja verður um það fyrir 26. janúar 2024.


Greiðslumátar
Beingreiðslur

Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.

Boðgreiðslur

Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Óska þarf eftir breytingu á greiðslumáta fyrir 26. janúar 2024.

Greiðsluseðlar í tölvupósti

Greiðsluseðill sendur í tölvupósti. Sendið tölvupóst á netfangið innheimta@ skagafjordur.is fyrir 26. janúar 2024 ef óskað er eftir að fá þennan kost virkjaðan.

Greiðsluseðlar

Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum. Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.


Ellilífeyrisþegar og örorkulífeyrisþegar

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2023 vegna tekna ársins 2022. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2024, vegna tekna ársins 2023 er lokið. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2024. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.


Frekari upplýsingar

Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið innheimta@skagafjordur.is eða í síma 455 6000.