Fara í efni

Veitunefnd Svf Skagafjarðar

83. fundur 25. nóvember 2021 kl. 13:00 - 14:30 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jóhannsson aðalm.
  • Eyrún Sævarsdóttir aðalm.
  • Úlfar Sveinsson áheyrnarftr.
  • Guðmundur Björn Eyþórsson varam.
Starfsmenn
  • Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Gunnar Björn Rögnvaldsson
  • Valur Valsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Skagafjarðarveitur - fjárhagsáætlun 2022

Málsnúmer 2109208Vakta málsnúmer

Farið var yfir forsendur fjárhagsáætlunar Skagafjarðarveitna. Í áætluninni er gert ráð fyrir bættri afkomu veitnanna og útlit er fyrir að reksturinn sé að ná jafnvægi.

Áætlunin lögð fram og samþykkt.

Árni Egilsson sat undir þessum lið.

2.Gjaldskrá hitaveitu 2022

Málsnúmer 2110133Vakta málsnúmer

Tillaga veitunefndar um 4,5 % hækkun á gjaldskrá hitaveitu var lögð fyrir 988. fund byggðarárðs þann 3. nóvember síðastliðinn. Byggðarráð samþykkti framlagða gjaldskrá og vísaði henni til afgreiðslu sveitastjórnar sem tók málið fyrir á fundi þann 24. nóvember og samþykkti.

Nefndin felur sviðsstjóra að ganga frá tilkynningu um nýja gjaldskrá sem skal taka gildi 1. janúar 2022.

Árni Egilsson sat fundinn undir þessum lið.

3.Gjaldskrá vatnsveitu 2022

Málsnúmer 2110132Vakta málsnúmer

Farið yfir forsendur gjaldskrár vatnsveitu 2022. Vatnsgjald er reiknað af öllum fasteignum, sem eru gjaldskyldar, skal greiða vatnsgjald sem nemur 0,16% af álagningarstofni. Lágmarksgjald skal vera pr. rúmmetra kr. 44,94 og hámarksgjald pr. rúmmetra kr. 53,67. Aðrir liðir taka mið af vísitöluhækkun.

Veitunefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar málinu til afgreiðslu byggðaráðs.

Árni Egilsson sat þennan lið.

4.Kaldavatnsveitur 5 ára framkvæmdaáætlun

Málsnúmer 2111213Vakta málsnúmer

Lögð er fram áætlun um nýframkvæmdir og viðhald á kaldavatnskerfi Skagafjarðarveitna. Áætlunin tekur til 5 ára og skal höfð til viðmiðunar við gerð fjárhagsáætlana og uppfærast á hverju ári.

Sviðsstjóri fór yfir áætlum um framtíðarsýn í öflun á köldu vatni og viðhald á lagnakerfi sveitarfélagsins. Nefndin samþykkir áætlunina.

Árni Egilsson sat fundinn undir þessum lið.

5.Eftirlit með borun VH-22 hitaholu við Reykjarhól samningur við Ísor

Málsnúmer 2106278Vakta málsnúmer

Ísor hefur framkvæmt viðamiklar mælingar í holunni. Enn er verið að vinna úr upplýsingum en þó eru taldar líkur á að nýta megi holuna með því að bora út úr henni neðan fóðringar.

Samþykkt er að fela sviðsstjóra að halda áfram rannsóknum á holunni í samstarfi við Ísor og kanna þá valkosti sem þykja mögulegir til að ná heitu vatni inn í holuna og meta kostnað við verkið.

Fundi slitið - kl. 14:30.