Fara í efni

Veitunefnd Svf Skagafjarðar

73. fundur 21. janúar 2021 kl. 13:00 - 14:30 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jóhannsson aðalm.
  • Eyrún Sævarsdóttir aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason aðalm.
  • Úlfar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Gunnar Björn Rögnvaldsson
  • Valur Valsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Hegranes vinnuútboð 2020 - hitaveita og strenglögn

Málsnúmer 2004116Vakta málsnúmer

Hleypt var heitu vatni inná stofninn fyrir Hegranesið fimmtudaginn 14. jan. Fyrsta heimtaugin var svo tengd inná kerfið mánudaginn 18. jan. Í framhaldinu munu enn fleiri notendur detta inn.
Tenging ljósleiðara í brunnum er komin af stað. Búnaðurinn til að tengja ljósleiðarann við Sauðárkrók er ekki kominn.
Nefndin fagnar áfanganum og óskar ábúendum á Hegranesinu til hamingju. Formleg opnun verður síðar.

2.Hólmurinn, hitaveita Vallanes - Stokkhólmi kostnaðaráætlun

Málsnúmer 2009213Vakta málsnúmer

Fyrirspurn kom frá eigenda að Stokkhólma um aðgang að heitu vatni.
Málið er í skoðun hjá sviðsstjóra.
Lagning hitavatnslagnar frá Vallanesi að Stokkhólma er ekki á fjárhagsáætlum á árinu 2021.
Vísað er í bókum frá fundi Veitunefndar nr.70 þann 28.09.2020.

3.Hólmurinn - Ljósleiðari

Málsnúmer 2101075Vakta málsnúmer

Lagningu ljósleiðara er lokið. Tenging ljósleiðara hefst ekki fyrr en Hegranesið er langt komið eða búið.

4.Borun vinnsluholu VH-20, Reykjarhóll - kostnaðaráætlun

Málsnúmer 2012006Vakta málsnúmer

Yfir kaldasta tímann í jan. 2021 þurftu Skagafjarðarveitur að senda frá sér tilkynningu til að biðla til notendur að fara sparlega með heita vatnið. Búast má við að viðlíka ástand komi upp á næstu mánuðum þegar svo kalt er í veðri.
Sviðsstjóra er falið að vinna að undirbúningu útboðs á nýrri vinnsluholu.

5.Framkvæmdir og viðhald 2021, verkefnastýring

Málsnúmer 2101047Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fer yfir verkefnalista yfir framkvæmdir og viðhald sem þarf að sinna á árinu.

Fundi slitið - kl. 14:30.