Fara í efni

Veitunefnd Svf Skagafjarðar

41. fundur 25. september 2017 kl. 15:00 - 16:40 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Helgi Þór Thorarensen ritari
  • Úlfar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Gunnar Björn Rögnvaldsson
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Skagfirðingabraut 1 - tjón vegna leka í hitaveitu.

Málsnúmer 1610017Vakta málsnúmer

Erindi vegna tjóns á Skagfirðingabraut 1 lagt fram til kynningar.

2.Hrolleifsdalur - prufudæling 2017

Málsnúmer 1705062Vakta málsnúmer

Lögð var fram til kynningar endanleg skýrsla frá Ísor varðandi borholur í Hrolleifsdal, "Jarðhitakerfið í Hrolleifsdal - Afkastageta samkvæmt vinnslueftirliti, dæluprófunum og líkanareikningum".
Niðurstaða skýrslunnar er sú að ekki er ráðlegt að auka vinnslu í Hrolleifsdal í stórum skrefum þar sem óljóst er hvort virkjanasvæðið í Hrolleifsdal standi undir aukningu umfram 4 lítrum á sekúndu frá því sem nú er. Ljóst er að niðurstaða skýrslunnar mun tefja uppbyggingu á hitaveitu í Óslandshlíð, Hjaltadal og Viðvíkursveit en vinna er þegar hafin við að skoða aðra kosti en Hrolleifsdal til að anna heitavatnsþörf svæðisins. Skagafjarðarveitur munu boða til íbúafundar fyrir íbúa svæðisins og verður tímasetning fundarins auglýst síðar.

3.Skagafjarðarveitur - svæði utan 5 ára framkvæmdaáætlunar

Málsnúmer 1702114Vakta málsnúmer

Lögð voru fram til kynningar svör við fyrirspurnum um mögulegra hitaveituframkvæmdir í Efribyggð, á norðanverðu Hegranesi og á Reykjaströnd.
Í kjölfar funda með íbúum sem haldin var í apríl var farið í skriflega áhugakönnun vegna mögulegrar hitaveituvæðingar.
Svörun var mjög góð, alls bárust 26 svör og voru þau öll jákvæð að einu undanskildu.

4.Vatnsveita á Steinsstöðum - möguleg stækkun dreifikerfis SKV

Málsnúmer 1503103Vakta málsnúmer

Lagðir voru fram til kynningar útreikningar á vatnsgjaldi fyrir íbúðar- og sumarhús ofan við Steinsstaði.
Sviðstjóra og formanni falið að vinna áfram að málinu.

5.Ísland ljóstengt 2018 v/ umsóknir

Málsnúmer 1709011Vakta málsnúmer

Lagður var fram til kynningar tölvupóstur frá fjarskiptasjóði þar sem kemur fram að undirbúningur vegna umsóknarferils fyrir Ísland Ljóstengt fyrir árið 2018 er hafin.
Gert er ráð fyrir styrkúthlutanir úr samkeppnispotti liggi fyrir í lok október eða byrjun nóvember.

6.Upplýsingar um aðild sveitarfélagsins að samningum um nýtingu innan þjóðlendna

Málsnúmer 1707031Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar erindi frá forsætisráðuneytinu um beiðni um upplýsingar um nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendu.
Sviðstjóra er falið að svara erindinu hvað varðar nýtingu vatns- og jarðhitaréttinda.

Fundi slitið - kl. 16:40.