Fara í efni

Veitunefnd Svf Skagafjarðar

38. fundur 10. maí 2017 kl. 15:00 - 16:05 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Úlfar Sveinsson áheyrnarftr.
  • Leifur Eiríksson varam.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Gunnar Björn Rögnvaldsson
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs
Dagskrá
Ingimar Jóhannsson sat 1. lið fundar.

1.Samningur vegna stækkun Sauðárkrókskirkju frá 1990.

Málsnúmer 1606199Vakta málsnúmer

Ingimar Jóhannsson kom á fund nefndarinnar fyrir hönd sóknarnefndar Sauðárkrókskirkju.

Til umræðu var samningur vegna stækkun Sauðárkrókskirkju frá 1990.

Ákveðið að setja mæli á innspýtingu fyrir snjóbræðslu og að Skagafjarðarveitur greiði fyrir upphitun heimkeyrsluréttar samkvæmt samningi frá 1990.

2.Hrolleifsdalur - prufudæling 2017

Málsnúmer 1705062Vakta málsnúmer

Prufudæling á borholum í Hrolleifsdal, SK-28 og SK-32, stendur nú yfir.

Byrjað var að prufudæla SK-28 19. apríl sl. og síðar var farið að dæla úr báðum holum samtímis.

Ákveðið að boða sérfræðinga frá ÍSOR á fund veitunefndar að loknum dæluprófunum.

3.Hitaveita - nýframkvæmd í Lýtingsstaðahreppi 2016 og 2017.

Málsnúmer 1602183Vakta málsnúmer

Fyrsti verkfundur vegna hitaveitu og strenglagnar í Lýtingsstaðahreppi er á morgun. Verktakar munu hefja framkvæmdir á næstu dögum.

4.Ísland ljóstengt 2017 - framkvæmd

Málsnúmer 1704077Vakta málsnúmer

Lagning ljósleiðara frá Marbæli að Sauðárkróki er í útboðsferli og verða tilboð í verkið opnuð 15. maí nk.

Stefnt er á að bjóða út lagningu um Hegranes að hluta ásamt Höfðaströnd og Sléttuhlíð á næstu dögum.

5.Vodafone - beiðni um samstarf við uppbyggingu ljósleiðarakerfis

Málsnúmer 1704099Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir fundinn erindi frá Vodafone þar sem fyrirtækið lýsir yfir áhuga á að taka þátt í uppbyggingu fjarskiptainnviða í tengslum við styrkveitingu til sveitarfélagsins vegna Ísland ljóstengt.

Sviðstjóra falið að boða fulltrúa Vodafone á fund veitunefndar.

Fundi slitið - kl. 16:05.