Fara í efni

Umhverfis- og tækninefnd

95. fundur 25. apríl 2001 kl. 13:00 Skrifstofa Skagafjarðar
Umhverfis- og tækninefnd Skagafjarðar
Fundur 95 - 25.04.01

 
Ár 2001, miðvikudaginn 25. apríl kl.13 kom Umhverfis- og tækninefnd saman til fundar á Skrifstofu Skagafjarðar. Fundinn sátu einnig sveitarstjórnarfulltrúar,  sveitarstjóri og heilbrigðisfulltrúi Norðurlands vestra. 
Mætt voru:      
Stefán Guðmundsson, Sigrún Alda Sighvats, Örn Þórarinsson, og Jóhann Svavarsson fulltrúar í Umhverfis- og tækninefnd, Sveitarstjórnarfulltrúarnir Gísli Gunnarsson, Snorri Styrkársson og Elinborg Hilmarsdóttir. Snorri B. Sigurðsson sveitarstjóri, Sigurjón Þórðarson og Steinunn Hjartardóttir frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, Þorsteinn Sæmundsson frá Náttúrustofu Norðurlands vestra, Hallgrímur Ingólfsson og Jón Örn Berndsen frá tæknideild Sveitarfélagsins.

Stefán Guðmundsson setti fund, og bauð velkomna fundarmenn.
Dagskrá:
  
             1.      Skýrsla um fráveitumál á Sauðárkróki, drög fyrir fund
                      Umhverfis- og tækninefndar 28.02.2001.

Afgreiðslur:
1.      Lögð fram forhönnunarskýrsla um fráveitumál á Sauðárkróki og tillögur að lausnum í samræmi við gildandi lög og reglugerðir um fráveitumál. Skýrslan, sem unnin er fyrir Sveitarfélagið af verkfræðistofunum Stoð á Sauðárkóki og Línuhönnun í Reykjavík var áður til umfjöllunar á fundi Umhverfis- og tækninefndar 28. febrúar og 22. mars sl. Á fundinn mættu Eyjólfur Þór Þórarinsson frá Stoð og Hafsteinn Helgason frá Línuhönnun og fóru yfir efni skýrslunnar og skýrðu það. Í skýrslunni eru teknir fyrir þrír valkostir til lausnar í fráveitumálum Sauðárkróks og mælt er með að valkostur 2 verði valinn sem lausn. Hann gerir ráð fyrir einni hreinsistöð á Borgarsandi og einni aðalútrás. Af Eyrinni verði tvær minni útrásir. Kostnaður er áætlaður um 280 milljónir króna og árlegur rekstrarkostnaður kerfisins um 10,5 milljónir króna. Gerð er tillaga um að framkvæmdum verði áfangaskipt og að framkvæmdir dreifist á fimm ára tímabil.  Um skýrsluna urðu miklar umræður svo og einnig um þann laga- og reglugerðarramma sem er um þennan málaflokk, fráveitumálin.
Stefán sleit fundi og þakkaði fundarmönnum fundarsetu og  góðan fund.
                            Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 1450
  
                                         Jón Örn Berndsen, ritari