Fara í efni

Umhverfisnefnd

3. fundur 19. september 2002 kl. 13:00 Ráðhús, 550 skr.

Ár 2002, fimmtudaginn 19. sept kl. 1300 kom Umhverfisnefnd saman til fundar í fundarsal Ráðhússins á Sauðárkróki.

Fundurinn var sameiginlegur fundur umhverfisnefndar og landbúnaðarnefndar ásamt tæknifræðingi, sveitarstjóra og fulltrúa heilbrigðiseftirlits.

Eftirtalin voru mætt:

Frá landbúnaðarnefnd: Bjarni Egilsson, Einar Einarsson, Úlfar Sveinsson og Sigurður Haraldsson, starfsmaður nefndarinnar.

Frá umhverfisnefnd: Ómar Unason, Viðar Einarsson og Elinborg Hilmarsdóttir.

Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri, Hallgrímur Ingólfsson, tæknifræðingur og Steinunn Hjartardóttir frá heilbr.eftirliti.

 

Dagskrá:

1. Fráveitumál í Sv.félaginu Skagafirði.


Afgreiðslur:

1. Bjarni Egilsson setti fund og bauð fundarfólk velkomið til fundar. Hann greindi frá tilefni þess að umhverfisnefnd er boðuð til fundar með landbúnaðarnefnd, hann greindi frá aðkomu landbúnaðarnefndar að salmonellusýkingu, sem upp kom í Hegranesi og sagði í stuttu máli frá ferlinu og ræddi almennt um fráveitumál og benti á að störf nefndanna sköruðust í ýmsum atriðum. Ljóst er að átak þarf að gera í fráveitumálum.

Niðurstaða umræðu um fráveitumál:

a) Stuðla að því að tæming rotþróa, sem fyrir eru í sveitarfélaginu, fari fram í haust.

b) Í framhaldi þeirrar skýrslu um fráveitumál, sem unnið er að á vegum sveitarfélagsins og væntanleg er á næstunni, verði unnið að framkvæmdaáætlun um úrbætur á fráveitum í sveitum.

Fram kom að heilbrigðiseftirlitið hefur boðað til fundar um fráveitumál í Hótel Varmahlíð mánud. 23. sept. n.k.


Fleira ekki gert, fundi slitið.

Elinborg Hilmarsdóttir

Ómar Unason

Viðar Einarsson