Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd

18. fundur 13. október 2023 kl. 13:00 - 15:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Hrefna Jóhannesdóttir formaður
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson aðalm.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Valur Valsson verkefnastjóri
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Guðný Hólmfríður Axelsdóttir Starfsmaður Veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Kjör varaformanns umhverfis- og samgöngunefndar

Málsnúmer 2310159Vakta málsnúmer

Hrefna Jóhannesdóttir formaður nefndar bar upp tillögu þess efnis að Guðlaugur Skúlason, fulltrúi D-lista, verði varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar.

Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða.

2.Fjárhagsáætlun 2024 - málefni umhverfis- og samgöngunefndar, 61 Skagafjarðarhafnir

Málsnúmer 2310153Vakta málsnúmer

Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2024 ásamt forsendum rammans til fyrri umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd.

Farið var yfir fyrstu tillögu að fjárhagsáætlun Skagafjarðarhafna 2024. Áætlunin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna og nefndarmanna. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð drög að fjárhagsáætlun og vísar henni til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvisson sat fundinn undir þessum lið.

3.Fundur Hafnasambands Íslands 2023

Málsnúmer 2309249Vakta málsnúmer

Hafnasambands Íslands boðar hér með til 11. hafnafundar, sem haldinn verður í ráðstefnusal Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði, föstudaginn 20. október nk.

Nefndin samþykkir að fulltrúi Skagafjarðarhafna á þinginu verði hafnarstjóri Dagur Þór Baldvinsson. Nefndarmenn eiga ekki heimangengt.

Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvisson sat fundinn undir þessum lið.

4.Sauðárkrókshöfn - fyrirhugaðar framkvæmdir við stálþil 2023

Málsnúmer 2304111Vakta málsnúmer

Tvö tilboð bárust í framkvæmdir við stálþil á Sauðárkrókshöfn. Tilboðin hafa verið yfirfarin og leiðrétt eftir því sem við á af Vegagerðinni sem leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Árna Helgason og vísar málinu til byggðarráðs.

Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvisson sat fundinn undir þessum lið.

5.Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2024

Málsnúmer 2310013Vakta málsnúmer

Í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2024 þarf að endurskoða gjaldskrá Skagafjarðarhafna.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur hafnastjóra að vinna drög að endurskoðaðri gjaldskrá og leggja fram fyrir næsta fund nefndarinnar sem fyrirhugaður er í byrjun nóvember.

Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvisson sat fundinn undir þessum lið.

6.Fjárhagsáætlun 2024 - málefni umhverfis- og samgöngunefndar, mfl. 08, 10, 11 og 69

Málsnúmer 2310151Vakta málsnúmer

Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2024 ásamt forsendum rammans til fyrri umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd.

Farið var yfir fyrstu tillögu að fjárhagsáætlun umhverfis-, hreinlætis-, umferðar og samgöngumála og fráveitu 2024. Áætlunin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna og nefndarmanna. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð drög að fjárhagsáætlun og vísar henni til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

7.Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu 2024

Málsnúmer 2310015Vakta málsnúmer

Í október var lokið við að telja öll sorpílát í þéttbýli. Sveitarfélagið ætti því að vera tilbúið fyrir næstu skref í fjórflokkun sorps við heimahús. Endurskoða þarf gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu en stefna sveitarfélagsins er að gjald fyrir endurvinnsluefni verði lægra en fyrir úrgang sem fer til urðunar.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur starfsmanni sviðsins að halda áfram vinnu við endurskoðun gjaldskrár og leggja drög að endurskoðaðri gjaldskrá fram fyrir næsta fund nefndarinnar sem fyrirhugaður er í byrjun nóvember.

8.Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024

Málsnúmer 2310016Vakta málsnúmer

Lagt er til að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald hækki um 4,9% frá og með 1. janúar 2024.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar málinu til byggðaráðs til samþykktar.

9.Snjómokstur 2023 - 2027, útboð

Málsnúmer 2306098Vakta málsnúmer

Farið var yfir útboðslýsingu sem felur í sér snjóhreinsun og hálkuvörn aksturs- og gönguleiða í þrjá vetur, þ.e. veturna 2023-2024, 2024-2025 og 2025-2026. Verkið verður boðið út í þremur hlutum eða snjómoksturs á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur tæknifræðingi á veitu- og framkvæmdasviði að auglýsa útboðið á grundvelli fyrirliggjandi útboðslýsingar með áorðnum breytingum.

Ingvar Páll Ingvarsson verkefnisstjóri sat fundinn undir þessum lið.

10.Fundagerðir Hafnasambands Íslands 2023

Málsnúmer 2301004Vakta málsnúmer

Fundagerð Hafnarsambandsins frá fundi nr. 456 lögð fram til kynningar.

Varðandi úthlutun styrkja 2023 úr Orkusjóði, þá samþykkir Umhverfis- og samgöngunefnd að taka undir með stjórn Hafnarsambands Íslands sem lýsir mikilli óánægju með afstöðu Orkusjóðs og fer fram á endurskoðun hennar ellegar að breytingar verði gerðar á úthlutunarreglum sjóðsins.

Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvisson sat fundinn undir þessum lið.

11.Minningardagur um fórnarlömb umferðaslysa 2023

Málsnúmer 2310054Vakta málsnúmer

Árlegur alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 19. nóvember 2023. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert og er fyrst og fremst tileinkaður minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni. Að þessu sinni verður dagurinn helgaður fyrstu viðbrögðum og neyðarhjálp á slysstað.

Nefndin hvetur alla sem hafa tök á að taka þátt í minningarviðburðum í tengslum við daginn og vill um leið koma þakklæti til sjálfboðaliða og starfsstétta sem veita hjálp, björgun og aðhlynningu þegar slys á sér stað.

12.Samstarfsfundir Hafnasambands Ísl. og Fiskistofu

Málsnúmer 2310118Vakta málsnúmer

Hafnasamband Íslands hefur átt samráðsfundi með Fiskistofu á undanförnum mánuðum þar sem rædd hafa verið ýmis málefni er tengjast höfnum landsins.
Nánar verður fjallað um samskipti hafna og Fiskistofu á hafnafundi í Hafnarfirði þann 20. október nk. og mikilvægt að sem flestar hafnir landsins sendi fulltrúa á þann fund.

Skagafjarðarhafnir hafa áhuga á því að taka þátt í tilraunaverkefni Hafnasambandsins og Fiskistofu um fjarvigtun í smærri höfnum. Umhverfis- og samgöngunefnd felur Hafnarstjóra að tilkynna til Hafnasambandsins áhuga Skagafjarðarhafna á þátttöku í slíku tilraunaverkefni á Hofsósi.

Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvisson sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 15:00.