Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

190. fundur 13. apríl 2022 kl. 13:00 - 15:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir formaður
  • Guðlaugur Skúlason varaform.
  • Steinar Skarphéðinsson ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Fuglalíf á Borgarskógum, við Tjarnartjörn og Áshildarholtsvatn

Málsnúmer 2106293Vakta málsnúmer

Erindi hefur borist frá Valtý Sigurðssyni starfsmanni NNV (Náttúrustofa norðurlands vestra) þar sem hann ásamt fleirum bendir á að fuglalífi hafi hrakað mjög á undanförnum árum á svæðinu sunnan við reiðhöllina á Sauðárkróki, við Áshildarholtsvatn og á Borgarskógum. Hvetur Valtýr sveitarfélagið til að hjálpa þarna til, með því að eyða samviskulega mink og ref. Valtýr ásamt fleirum ætla að fylgjast með þarna næstu ár og vera í sambandi með hvað getur valdið þessari leiðu þróun, að þarna hraki fuglalífi.


Umhverfis og samgöngunefnd þakkar góðar ábendingar frá Valtý. Lagt er til að aukin áherlsa verði lögð á meindýraeyðingu á svæðinu á næstu árum og að fylgst verði með þróun fuglalífs á næstu árum. Umhverfis og samgöngunefnd óskar eftir góðu samstarfi við NNV um verndun fuglalífs. Eyðing meindýra er í höndun landbúnarðarnefndar

2.Miðbæjarkjarni á Sauðárkróki. Tillaga umhverfis og samgöngunefndar varðandi miðbæjarkjarna á Sauðárkróki

Málsnúmer 2204079Vakta málsnúmer

Tillaga umhverfis- og samgöngunefndar varðandi miðbæjarkjarna á Sauðárkróki. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að hafin verði hugmyndavinna að skipulagi og hönnun miðbæjarsvæðis á Sauðárkróki. Í nýju Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar eru þrjú miðsvæði nefnd en það hefur verið nokkuð óljóst hvar íbúar telji miðbæinn sinn vera. Nefndin telur að skilgreina þurfi svæði í skipulagi sem sérstakan miðbæjarkjarna með það að markmiði að byggja upp miðbæjarumhverfi sem er sýnilegt og hefur aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti sem heimsækja okkur og er um leið spennandi tækifæri fyrir fjárfesta. Í vinnunni verði leitað eftir hugmyndum og tillögum í samráði við íbúa, atvinnulíf og félagasamtök.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að vísa tillögunni til byggðarráðs til umfjöllunar.



3.Snjómokstur 2022 - 2025

Málsnúmer 2204081Vakta málsnúmer

Samningur við verktaka um snjómokstur á Sauðárkróki rennnur út núna í vor. Ákvæði eru í samningi um að hægt sé að framlengja um eitt ár ef aðilar eru sammála um þá tilhögun. Borist hefur erindi frá verktakanum, Vinnuvélum Símonar, þar sem óskað er eftir að samningurinn verði framlengdur.

Nefndin frestar að taka afstöðu til málsins og felur sviðsstjóra að fara frekar yfir það og leggja fyrir næsta fund.

Fundi slitið - kl. 15:00.