Fara í efni

Stjórn Menningarseturs Skagfirðinga

1. fundur 21. maí 2014 kl. 16:30 á Hótel Varmahlíð
Nefndarmenn
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir formaður
  • Gunnar Rögnvaldsson ritari
  • Ásdís Sigrún Sigurjónsdóttir aðalm.
  • Arnór Gunnarsson aðalm.
  • Ólafur Hallgrímsson
Fundargerð ritaði: Gunnar Rögnvaldsson ritari
Dagskrá

1.Ársreikningar 2013

Málsnúmer 1510202Vakta málsnúmer

Formaður fór yfir reikninga og kynnti niðurstöður sk. ársreikningi nr. 1467 í sjóðaskrá.

Rekstrarreiknigur niðurstaða 2013

Tekjur alls: 2.155.040 kr
Gjöld alls: 3.3032.740 kr
Afkoma fyrir fjám.l. (877.700 kr)
Vaxtat. og fjárm. skattur 85.496 kr

Niðurstaða rekstrar -792.204

Efnahagur 31.12.2013
Fastafjármunir 71.822.000 kr
Veltufjármunir 4.116.997 kr

Eignir alls 75.998.997 kr.

Skuldir og eigið fé alls. 75.998.997 kr.

Aðrar upplýsingar í ársreikningi.
Reikningur samþykktur samhljóða.

2.Ósk um að framselja lóðaréttindi

Málsnúmer 1510217Vakta málsnúmer

Borist hefur bréf, dags. 3.4.2014 frá SIGA ehf kt. 641108-1460 sem haft hefur umráðarétt á lóð við Reykjarhólsveg 20B landnr. 208439 þess efnis að mega framselja lóðaréttindi til Katarhinu Teschler kt. 111079-4989.
Stjórnin samþykkir framsalið með skilyrðum, að komið verði sumarhús á lóðina eftir 1. ár frá undirritun lóðasamnings. Formanni falið að ganga frá málinu.

3.Styrkbeiðni v. íþróttamóts í Gautaborg

Málsnúmer 1510204Vakta málsnúmer

Styrkbeiðni frá UMSS vegna íþróttamóts ÍFÍ í Gautaborg. Rúmleg 30 keppendur fara út þar af 21 af skólasvæði Varmahlíðarskóla. Samkvæmt bréfi frá 9. febrúar 2014 er ferðakostnaður 124.500 kr. á mann. Undir bréfið ritar Steinunn Arnljótsdóttir foreldri.
Stjórnin samþykkir að styrkja Gautaborgarfara 27.-29. júní um 500.000 kr.

4.Styrkbeiðni - Sóldísir

Málsnúmer 1510198Vakta málsnúmer

Bréf frá Kvennakórnum Sóldísi frá 12. mars 2014. Leitað er eftir fjárstuðningi vegna starfsársins 2013-2014. Stjórnin samþykkir að styrkja kórinn um 250.000 kr.

5.Kammerkór Skagafjarðar - styrkbeiðni.

Málsnúmer 1510201Vakta málsnúmer

Bréf frá Skagfirska Kammerkórnum frá 14. apríl 2014. Leitað er eftir styrk vegna starfsársins 2014.
Samþykkt að styrkja kórinn um 250.000 kr.

6.Styrkbeiðni - FSN

Málsnúmer 1510203Vakta málsnúmer

Bréf frá Félagi skógarbænda á Norðurlandi frá 14. maí 2014 vegna kynningar á skógrækt í Skagafirði.
Stjórnin samþykkir að styrkja FSN um 50.000 kr.

7.Stígar og upplýsingaskilti

Málsnúmer 1305317Vakta málsnúmer

Stefnt að áframhaldandi vinnu við merkingar og stígagerð í Varmahlíð. Sjá bókun 3. fundar 2013

8.Prókúra

Málsnúmer 1510205Vakta málsnúmer

Stjórnin samþykkir að veita formanni stjórnar, Þórdísi Friðbjörnsdóttur, prókúru Menningarsetursins en sk. upplýsingum úr banka er fyrrverandi formaður Þóra Björk Jónsdóttir ennþá skráður prókúruhafi.

Fundi slitið.