Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

394. fundur 14. desember 2020 kl. 12:30 - 13:45 í Ráðhúsi, Skagf.braut 17-21
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Regína og Sveinn voru þáttakendur á fundi, með Teams fjarfundarbúnaði.

1.Kleifatún 10 - Umsókn um breikkun innkeyrslu

Málsnúmer 2012084Vakta málsnúmer

Heiðar Örn Stefánsson kt: 040281-5929 og Gunnhildur Ása Sigurðardóttir kt: 091181-3209, þinglýstir eigendur Kleifartúns 10, á Sauðárkróki, óska eftir leyfi til að breikka innkeyrslu að lóðinni, u.þ.b. 3m til norðurs, skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugsemdir við að innkeyrsla verði breikkuð. Nefndin gerir fyrirvara um jákvæða umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.

2.Ljónsstaðir L 230903 - Stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2012104Vakta málsnúmer

Einar Jakobsson kt. 030943-3929 þinglýstur eigandi lóðarinnar Ljónsstaðir, landnúmer 230903 óskar eftir heimild til að stofna 2.500 m² byggingarreit á landi lóðarinnar, skv. meðfylgjandi gögnum, unnum af Stoð ehf verkfræðistofu. Um er að ræða byggingarreit fyrir íbúðarhús að hámarki 250 m² að stærð.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæðar umsagnir Minjavarðar Norðurlands vestra og Vegagerðarinnar.

3.Iðutún 17 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2012128Vakta málsnúmer

Ásbjörn Óttarsson kt. 161162-2809, sækir um að fá úthlutaðri lóðinni Iðutún 17, á Sauðárkróki, til byggingar íbúðarhúss.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjenda.

Fundi slitið - kl. 13:45.