Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

360. fundur 10. október 2019 kl. 17:00 - 19:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag - endurskoðun- íbúafundur 10.10.19

Málsnúmer 1910102Vakta málsnúmer

Fundurinn er opinn íbúafundur til að ræða áherslur, stefnu og verklag við mótun nýs Aðalskipulags fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð til a.m.k. næstu 12 ára.
Megintilgangur fundarins er að fá fram fleiri sjónarmið og ábendingar frá íbúum um það sem leggja á áherslu á í mótun nýs aðalskipulags og vekja áhuga á mikilvægi aðalskipulags fyrir þróun samfélagsins.
Því leitaði Skipulags- og byggingarnefnd til sérfræðinga, hagaðila og almennings til að ræða áherslur og framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið.
Í inngangsorðum Einars Einarsson, formanns skipulags- og byggingarnefndar fór hann yfir skipulagsferlið, vinnu- og tímaplan og gerði stuttlega grein fyrir niðurstöðum vinnufundar með grunnskólanemendum.
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri fjallaði í erindi sínu um íbúaþróun og þörf á nýjum íbúðum.
Sigurður Árnason og Eva Pandóra Baldursdóttir sérfræðingar frá Byggðastofnun um atvinnuþróun í sveitarfélaginu, stöðu og tækifæri og Guðrún Lárusdóttir, formaður Búnaðarsambands Skagfirðinga um stöðu landbúnaðar horfur og tækifæri.
Að loknum erindum frummælenda var sett upp vinnustofa þar sem fundarmenn fjölluðu um þrjú þemu, íbúaþróun og húsnæðismál, atvinnu og landbúnað.
Skipulags- og byggingarnefnd þakkar þeim mörgu sem tóku þátt í fundinum og frummælendum fyrir fróðleg erindi.
Stefán Gunnar Thors frá VSÓ ráðgjöf sat fundinn

Fundi slitið - kl. 19:00.