Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

88. fundur 07. desember 2005
Skipulags- og byggingarnefnd  Skagafjarðar
Fundur 88 – 7. desember 2005.
 
Ár 2005, miðvikudaginn 7. desember kl. 1800, kom  Skipulags- og byggingarnefnd saman til fundar að Höfðaborg, Hofsósi.
 
Mætt voru:
Bjarni Maronsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Jón Örn Berndsen skipulags – og byggingarfulltrúi,
 
Fundurinn var opinn kynningarfundur vegna vinnu við gerð Aðalskipulags fyrir Skagafjörð 2005-2017.
Að loknum inngangsorðum Bjarna Maronssonar, formanns skipulags – og byggingarnefndar, kynntu Árni Ragnarsson og Páll Zophoníasson Aðalskipulags-tillöguna, fóru yfir tillögur og markmið og útskýrðu þann lagaramma sem aðalskipulag byggir á. Þá var ítarlega farið yfir sveitarfélagsuppdráttinn og þéttbýlisuppdrættina..
Að því loknu var orðið gefið laust og síðan svöruðu frummælendur og nefndarmenn fyrirspurnum.
 
Fleira ekki gert. Formaður sleit fundi og þakkaði fundarmönnum öllum góða fundarsetu.
 
Fundarlok 2230
 
Jón Örn Berndsen
ritari fundargerðar