Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

85. fundur 05. desember 2005
Skipulags- og byggingarnefnd  Skagafjarðar
Fundur 85 – 5. desember 2005.
 
Ár 2005, mánudaginn 5. desember kl. 2100, kom  Skipulags- og byggingarnefnd saman til fundar að Hótel Varmahlíð.
           
            Mætt voru:      
Bjarni Maronsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Örn Berndsen skipulags – og byggingarfulltrúi,
 
            Fundurinn var opinn kynningarfundur vegna vinnu við gerð Aðalskipulags fyrir    Skagafjörð 2005-2017.
Að loknum inngangsorðum Bjarna Maronssonar formanns skipulags – og byggingarnefndar kynntu Árni Ragnarsson og Páll Zophoníasson Aðalskipulags-tillöguna, fóru yfir tillögur og markmið og útskýrðu þann lagaramma sem aðalskipulag byggir á. Þá var ítarlega farið yfir sveitarfélagsuppdráttinn og þéttbýlisuppdrættina..
Að því loknu var orðið gefið laust og síðan svöruðu frummælendur og nefndarmenn fyrirspurnum.
 
Fleira ekki gert. Formaður sleit fundi og þakkaði fundarmönnum öllum góða fundarsetu.
     
 
 
 
                                                                                              Fundarlok 2330
                         
                                      Jón Örn Berndsen
                                      ritari fundargerðar