Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

35. fundur 16. september 2003
Skipulags- og byggingarnefnd Skagafjarðar
Fundur 35 - 16. september 2003 
                                                                                                           

Ár 2003 þriðjudaginn 16. september kl. 1600 kom Skipulags- og byggingarnefnd saman til fundar í Aðalgötu 16 – Kaffi Krók.
           
Mætt undirrituð.
Fundurinn er sameiginlegur fundur með Samgöngunefnd.
Bjarni Maronsson setti fund og skipaði Brynjar fundarstjóra.
 
Dagskrá:
                  1.          Skipulagsmál og samstarf nefndanna.
 
Afgreiðslur:
 
                  1.          Skipulagsmál og samstarf nefndanna.
Rætt um skipulagsmál hafnarsvæðisins og erindi Kaupfélags Skagfirðinga um viðbyggingu við Hesteyri 2. Samþykkt að breyta lóðinni Hesteyri 2 og byggingarreit lóðarinnar og auglýsa þá breytingu samkvæmt skipulags- og byggingarlögum. Fundarmenn eru sammála um að í framhaldi af því sé nauðsynlegt að taka deiliskipulag hafnarsvæðisins til heildarendurskoðunar.
Ákveðið var að hvor nefnd geri drög að erindisbréfi fyrir sig og vinni þau saman, þar sem starfssvið þeirra skarast.
 
                  2.          Önnur mál – Engin.
 
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17,50.
 
Jón Örn Berndsen (ritari fundar)
Gunnar Bragi Sveinsson
Valgerður Inga Kjartansdóttir   
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Brynjar Pálsson
Örn Þórarinsson
Árni Ragnarsson
Bjarni Maronsson