Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

12. fundur 26. nóvember 2002
Skipulags- og byggingarnefnd  Skagafjarðar
Fundur  12 - 26.11.2002

Ár 2002, þriðjudaginn 26. nóvember kl. 815 kom Skipulags- og byggingarnefnd saman til fundar í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki.
Mætt voru:      
            Bjarni Maronsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson,
            og Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi.
 
Dagskrá:
                1.      Glaumbær II smáhýsi – Stöðuleyfisumsókn
  
             2.      Heiði í Gönguskörðum smáhýsi – Stöðuleyfisumsókn
  
             3.      Aðalskipulag Skagafjarðar
  
             4.      Önnur mál. 
Afgreiðslur: 
  1. Glaumbær II smáhýsi – Stöðuleyfisumsókn. Skúli Halldórsson Hólatúni 7 Sauðárkróki endurnýjar stöðuleyfisumsókn fyrir smáhýsi sem stendur syðst í landi Glaumbæjar II á Langholti. Meðfylgjandi er samþykki landeiganda Arnórs Gunnarssonar. Samþykkt að veita stöðileyfi til eins árs.
  1. Heiði í Gönguskörðum smáhýsi – Stöðuleyfisumsókn. Krókaleiðir, vélsleðaleiga sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir smáhýsi í landi Heiðar í Gönguskörðum,.Meðfylgjandi umsókn er samningur um landið milli landeiganda og Krókaleiða. Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.
  1. Aðalskipulag Skagafjarðar – Á fundinn mætti  Árni Ragnarsson skipulagsarkitekt vegna vinnu við gerð aðalskipulags fyrir Sveitarfélagið Þráðurinn var tekinn upp þar sem frá var horfið á síðasta fundi og áfram unnið í  4 kafla í aðalskipulagstillögunni. Yfirferð 4. kafla lokið og byrjað á 5. kaflanum. Árni Ragnarsson vék nú af fundi.
  1. Önnur mál. – Ákveðið að halda kynningarfund fyrir sveitarstjórnarfólk um skipulagsmál á morgun kl. 16. á Kaffi Krók .
 
                    Fleira ekki fyrir tekið,  fundargerð upplesin og samþykkt.
                    Fundi slitið kl. 12.41

                                     Jón Örn Berndsen  ritari fundargerðar