Fara í efni

Samstarfsnefnd með Akrahreppi

20. fundur 07. júní 2013 kl. 13:00 - 15:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Sigríður Svavarsdóttir aðalm.
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
  • Herdís Á Sæmundardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs
  • Agnar Gunnarsson oddviti Akrahrepps
  • Þorleifur Hólmsteinsson fulltrúi Akrahrepps
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Dagskrá
Sigríður A. Jóhannsdóttir, mannauðsstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sat fundinn.

1.Skólastjóri Varmahlíðarskóla - auglýst starf

Málsnúmer 1303521Vakta málsnúmer

Meirihluti samstarfsnefndar samþykkir að hafna öllum umsækjendum um starf skólastjóra Varmahlíðarskóla. Er það gert á grundvelli mats Capacent á umsækjendum, en samþykkt var á síðasta fundi nefndarinnar að leita til ráðningarfyrirtækis. Ákveðið er að auglýsa stöðuna aftur. Fulltrúar Akrahrepps ítreka að þeir lögðust í upphafi gegn því að leitað yrði til ráðningarfyrirtækis og vildu ráða Láru Gunndísi Magnúsdóttur í starfið. Fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar óska bókað að þeir vildu ekki taka afstöðu til umsækjenda án faglegs mats á þeim.

Fundi slitið - kl. 15:00.