Fara í efni

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 21

Málsnúmer 1909009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 388. fundur - 25.09.2019

Fundargerð 21. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks lögð fram til afgreiðslu á 388. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 21 Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og Ingvar Páll Ingvarsson verkefnastjóri fóru yfir stöðu framkvæmda við Sundlaug Sauðárkróks. Einnig voru umræður um áfanga 2, nýbyggingu við sundlaugina.
    Byggingarnefndin samþykkir að hraða hönnun 2. áfanga laugarinnar.
    Bókun fundar Fundargerð 21. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks staðfest á 388. fundi sveitarstjórnar 25. september 2019 með níu atkvæðum.