Fara í efni

Rannsókn á gasmyndun á urðunarstað sveitarfélagsins

Málsnúmer 1003273

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 511. fundur - 26.03.2010

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi rannsókn á gasmyndun á urðunarstað sveitarfélagsins. Erindið fær afgreiðslu í umhverfis- og samgöngunefnd.

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 56. fundur - 15.04.2010

Beiðni hefur borist frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga um að Sveitarfélagið Skagafjörður taki þátt í rannsóknarverkefni um hauggasmyndun og hugsanlega söfnun þess á urðunarstað Sveitarfélagsins á Skarðsmóum í samvinnu við Háskóla Íslands, verkfræðistofuna Eflu og Umhverfisstofnun. Sveitarfélagið greiði hluta kostnaðar við verkefnið. Sveitarfélagið Skagafjörður fékk undanþágu á kröfu um söfnun hauggass á urðunarstaðnum á Skarðsmóum. Undanþágan byggðist m.a á því að áform eru að urða úrgang frá Sveitarfélaginu á nýjum urðunarstað við Sölvabakka. Verður sá staður tekin í notkun í nú á haustdögum. Mat Unhverfis- og samgöngunefndar er að um mjög líðið magn af gasi sé að ræða og því ekki ástæða til að taka þátt í verkefninu þar sem nýr urðunarstaður er nú í sjónmáli.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 262. fundur - 20.04.2010

Afgreiðsla 511. fundar byggðaráðs staðfest á 262. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 262. fundur - 20.04.2010

Afgreiðsla 56. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 262. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.