Fara í efni

Íbishóll land 2 219047 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1001168

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 198. fundur - 27.01.2010

Magnús Bragi Magnússon kt. 111069-5739, þinglýstur eigandi jarðarinnar Íbishóls landnr. 146044, sækir með bréfi dagsettu um heimild til að skipta 41.482,0 m² lóð, (landnr, 219047), úr landi jarðarinnar Íbishóls.  Framlagður hnitsettur yfirlits-og uppdráttur dags. 16. desember 2009, gerður á Stoð ehf. verk­fræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 7457-1. Lögbýlaréttur og öll hlunnindi munu áfram tilheyra Íbishóli, landnr. 146044. Fylgiskjöl með umsókn. Eignayfirlýsing dagsett 17.12.2009, yfirlýsing um ágreiningslaus landamerki dagsett 13.01.2010 og  yfirlýsing um ágreiningslaus landamerki dagsett 16.01.2010. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.