Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

9. fundur 27. apríl 2023 kl. 10:00 - 14:58 í Félagsheimilinu Ljósheimum
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Sigrún Eva Helgadóttir varaform.
  • Jón Sigurjónsson aðalm.
  • Arnar Bjarki Magnússon varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Hrólfur Þeyr Hlínarson
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Girðing móti Tungulandi

Málsnúmer 2304020Vakta málsnúmer

Erindi hefur borist frá Andrési Helgasyni bónda í Tungu, þar sem hann óskar eftir viðræðum um rafgirðingu í landi sveitarfélagsins, móti Tungulandi sunnan Gönguskarðsár. Girðingin er niður fallin og hættuleg skepnum. Einnig er þörf á að endurnýja girðingu á merkjum gagnvart Tungu.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að rafgirðingin verði fjarlægð og að sveitarfélagið taki þátt í endurnýjun girðingar á merkjum gagnvart Tungu samkvæmt lögum og reglugerðum. Landbúnaðarnefnd óskar eftir kostnaðaráætlun frá Andrési varðandi merkjagirðinguna.

2.Þröm - Beiðni um stofnun lögbýlis

Málsnúmer 2304048Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. apríl 2023 frá Brynjari Skúlasyni og Sigríði Bjarnadóttur, eigandum jarðarinnar Þröm í Skagafirði, L176749, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis. Áformað er að nýta jörðina fyrir skógrækt. Veðbókarvottorð jarðarinnar fylgir erindinu ásamt yfirlitsmynd af landamerkjum hennar gagnvart aðliggjandi jörðum. Fyrir liggja meðmæli ráðunautar hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins með að stofnun nýs lögbýlis á jörðinni verði samþykkt.
Landbúnaðarnefnd sér ekkert því til fyrirstöðu að lögbýlið verði stofnað og mælir með að það hljóti staðfestingu sveitarstjórnar.

3.Úthlutun til fjallskilanefnda 2023

Málsnúmer 2211228Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi landbúnaðarnefndar úthlutaði nefndin 4,2 mkr. framlagi til hluta fjallskilasjóða í sveitarfélaginu, af 8 mkr. fjárveitingu ársins.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að úthluta 1.050 þkr. til fjallskilasjóða á þessum fundi af fjármagni því sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin samþykkir einnig að fá forsvarsmenn Fjallskilasjóðs Hofsóss- og Unadals, Fjallskilasjóðs Hóla- og Viðvíkurhrepps og Upprekstrarfélags Akrahrepps á næsta fund nefndarinnar til viðræðu um fjárhagsáætlun þeirra fyrir árið 2023.
Landbúnaðarnefnd beinir því til eignarsjóðs að 2,5 mkr. framlag af fjárveitingu ársins 2023 til viðhalds skilarétta verði eyrnamerkt Fjallskilasjóði Skefilssstaðahrepps vegna viðhalds á Selnesrétt.

4.Áætlun refa og minkaveiði 2023

Málsnúmer 2304100Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun um minka- og refaveiði ársins 2023 og úthlutun veiðikvóta. Gert er ráð fyrir að veiða 331 ref og 235 minka. Fjárhæðir verðlauna til ráðinna veiðimanna eru 11.000 kr. fyrir veiddan mink en 2.000 kr. til annarra. Verðlaun til ráðinna veiðimanna fyrir unnið grendýr 20.000 kr., hlaupadýr/vetrarveiði 10.000 kr. Aðrir fá greiddar 1.000 kr. fyrir refinn. Undir þessum dagskrárlið komu refa- og minkaveiðimenn til viðræðu um tilhögun veiðanna árið 2023. Mættir voru: Þorsteinn Ólafsson, Stefán Ingi Sigurðsson, Hans Birgir Friðriksson, Birgir Árdal Hauksson, Elvar Örn Birgisson, Steinþór Tryggvason og Egill Yngvi Ragnarsson.
Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagðar áætlanir um minka- og refaveiði 2023.

5.Fjallskilasjóður Seyluhrepps - úthluta, ársreikningur 2022

Málsnúmer 2304032Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Seyluhrepps - úthluta, fyrir árið 2022.

6.Fjallskilasjóður Staðarhrepps og Fjallskilasjóður Staðarafréttar, ársreikningur 2022

Málsnúmer 2303285Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar ársreikningar Fjallskilasjóðs Staðarhrepps og Fjallskilasjóðs Staðarafréttar fyrir árið 2022.

7.Fjallskilasjóður framhluta Skagafjarðar, ársreikningur 2022

Málsnúmer 2303289Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs framhluta Skagafjarðar fyrir árið 2022.

8.Fyrirlestur - Ester Rut Unnsteinsdóttir, NÍ

Málsnúmer 2304101Vakta málsnúmer

Dr. Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands kom á fundinn og flutti fróðlegan og áhugaverðan fyrirlestur um melrakkann fyrir nefndarmenn og ráðna veiðimenn. Starri Heiðmarsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fundi slitið - kl. 14:58.