Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

4. fundur 17. október 2022 kl. 09:30 - 11:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Sigrún Eva Helgadóttir varaform.
  • Jón Sigurjónsson aðalm.
  • Arnar Bjarki Magnússon varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Hrólfur Þeyr Hlínarson
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Samþykkt um búfjárhald í þéttbýli Skagafjarðar

Málsnúmer 2208252Vakta málsnúmer

Vegna sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði fyrr á árinu, þá þarf að endurskoða samþykkt um búfjárhald í þéttbýli í sveitarfélaginu.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Sigrúnu Evu Helgadóttur og Kára Gunnarssyni að fara yfir samþykktina með tilliti til breytinga og leggja drög fyrir næsta fund nefndarinnar.

2.Ágangur búpenings frá Þrastarstöðum

Málsnúmer 2208127Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. ágúst 2022 frá Kristjáni Knútssyni, Litlu Brekku varðandi lausagöngu búfjár frá Þrastarstöðum.
Landbúnaðarnefnd telur að sveitarfélagið sé ekki málsaðili samkvæmt lögum og beinir því til málsaðila að leysa málið sín á milli.

3.Skógarhlíðargirðing norður

Málsnúmer 2209043Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn frá Kára Gunnarssyni umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa sveitarfélagsins varðandi girðingu og mögulegar girðingarleiðir í norðanverðri Skógarhlíð ofan Sauðárkróks.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að beina ákvörðun um breytingu á girðingarstæði til umhverfis- og samgöngunefndar, þ.e.a.s. hvort stækka eigi land skógræktar innan girðingarinnar um ca. 5ha.

4.Fjárhagsáætlun 2023 - Landbúnaðarmál

Málsnúmer 2210099Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun vegna landbúnaðarmála í málaflokki 13, atvinnumál. Gert er ráð fyrir mikilli aukningu á framlögum til viðhalds girðinga. Aðrir liðir breytast eftir forsendum rammaáætlunar. Gert er ráð fyrir að fjárframlög til landbúnaðarmála verði 27.105 þús.kr. á árinu 2023. Einnig var farið yfir áætluð framlög vegna minka- og refaeyðingar á árinu 2023. Málaflokkurinn tilheyrir umhverfis- og samgöngunefnd en landbúnaðarnefndin hefur haft umsjón með verkefninu. Áætlun vegna minka- og refaeyðingar hljóðar upp á 8.285 þús.kr.
Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2023 og vísar henni til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

5.Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar

Málsnúmer 2208249Vakta málsnúmer

Vegna sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði fyrr á árinu, þá þarf að endurskoða Fjallskilasamþykkt fyrir Skagafjarðarsýslu nr. 717/2021.
Landbúnaðarnefnd stefnir að fjallskiladeildir verði sameinaðar í sveitarfélaginu þar sem mögulegt er og sömuleiðis aflögðum skilaréttum fækkað. Málið verður til umfjöllunar hjá nefndinni áfram.

6.Fjallskilasjóður framhluta Skagafjarðar - ársreikningur 2021

Málsnúmer 2208129Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs framhluta Skagafjarðar fyrir árið 2021.

7.Fjallskilasjóður Seyluhrepps - úthluta, ársreikningur 2021

Málsnúmer 2208286Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Seyluhrepps - úthluta, fyrir árið 2021.

8.Ársreikningur 2021 Fjallsk.sjóður V-Fljóta

Málsnúmer 2209138Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Vestur-Fljóta, fyrir árið 2021.

Fundi slitið - kl. 11:20.