Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

222. fundur 21. október 2021 kl. 13:00 - 15:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Jóel Þór Árnason aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Jón Sigurjónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að taka mál 2109289-Samráð; Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu.

1.Samráð; Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu

Málsnúmer 2109289Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. september 2021, þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 184/2021, "Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu". Umsagnarfrestur er til og með 22.10.2021.
Með tilvísun í bókun byggðarráðs frá því 20. október 2021 vegna þessa máls samþykkir landbúnaðarnefnd að fela Kára Gunnarssyni að koma athugasemdum landbúnaðarnefndar á framfæri við sveitarstjóra sem sendir inn umsögn fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

2.Fjallskilasjóður Deildardals - Tjón á afréttarvegi vegna vatnavaxta

Málsnúmer 2108275Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. ágúst 2021 frá Jóni Kjartanssyni fyrir hönd Fjallskilasjóðs Deildardals þar sem fram kemur að kostnaður, vegna vatnavaxtatjóns sem varð um mánaðamótin júní/júlí s.l. á vegi í Deildardalsafrétt, hafi numið 1.035.000 kr. og kostnaður við óunnið verk áætlaður 240.000 kr. Málið áður tekið fyrir á fundi landbúnaðarnefndar þann 19. júlí s.l.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að veita styrk að fjárhæð 1.300.000 kr. til fjallskilasjóðsins vegna þessa tjóns. Fjármunir teknir af deild 13210.

3.Skarðsárrétt framkvæmdir

Málsnúmer 2108193Vakta málsnúmer

Lögð fram staðfesting Skarðsárnefndar, dagsett 21. ágúst 2021, á leyfi fyrir framkvæmdum við Skarðsárrétt. Einnig lögð fram verk- og kostnaðaráætlun unnin af Kristjáni Ó. Eymundssyni.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að leggja allt að 1.500 þús.kr. í verkið gegn framvísun reikninga vegna verksins. Fjármunir teknir af deild 13210.

4.Riðumál í Skagafirði

Málsnúmer 2110117Vakta málsnúmer

Sigríður Björnsdóttir starfandi yfirdýralæknir hjá MAST kom til viðræðu um riðumál í Skagafirði.
Landbúnaðarnefnd hvetur sauðfjárbændur almennt til að gæta að smitvörnum og hefta samgang fjár á milli bæja, viðhalda girðingum og hýsa ekki fé af öðrum bæjum.

5.Gjaldskrá vegna útgáfu búfjárleyfa og lausagöngu búfjár

Málsnúmer 2110157Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd samþykkir að leggja til við byggðarráð að breyta gjaldskrá vegna útgáfu búfjárleyfa og lausagöngu búfjár frá 9. desember 2015, þannig að gjaldtaka vegna útgáfu búfjárleyfa verði felld niður og það gert með eftirfarandi hætti:

1. Gjaldskráin heiti gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár.
2. Breyting verði gerð á 1. grein og hún verði svo:
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt samþykkt um búfjárhald í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði nr. 1264/2015. Henni er ætlað að standa undir kostnaði sem hlýst af handsömun, fóðrun og hýsingu lausagöngubúfjár.
3. Breyting verði gerð á 2. grein og hún verði svo:
Handsömunargjald skv. 8. gr. samþykktar um búfjárhald í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði nr. 1264/2015, skal vera 10.000 kr. Að auki skal greiða þann kostnað, sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi búfénaðar.

6.Fjárhagsáætlun 2022 - málefni landbúnaðarnefndar

Málsnúmer 2110118Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun fyrir árið 2022 vegna málefna sem heyra undir landbúnaðarnefnd. Kostnaður vegna landbúnaðarnefndar 2.259 þús.kr., ýmis landbúnaðarmál 13.910 þús.kr., þar af laun og framlög til fjallskiladeilda 7.985 þús.kr. Samtals landbúnaðarmál undir málaflokki 13, 16.169 þús.kr.
Framlög til minka- og refaeyðingar eru áætluð samtals 9.476 þús.kr. og endurgreiðsla frá ríki 1.483 þús.kr. Samtals umhverfismál undir málaflokki 11 eru 7.993 þús.kr.
Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagða áætlun til fyrri umræðu en áréttar að frekara fjármagn þarf til viðhalds girðinga.

7.Ársreikningur 2019 - Fjallskilasjóður Skefilsstaðahrepps

Málsnúmer 2108175Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Skefilsstaðahrepps fyrir árið 2019.

8.Fjallskilasjóður Seyluhrepps - úthluta, ársreikningar 2018-2020

Málsnúmer 2109107Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar ársreikningar Fjallskilasjóðs Seyluhrepps-úthluta fyrir árin 2018-2020.

Fundi slitið - kl. 15:45.