Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

221. fundur 17. ágúst 2021 kl. 15:00 - 16:23 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Jóel Þór Árnason aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Jón Sigurjónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt að taka mál 2108112 á dagskrá með afbrigðum.
Jóhannes H. Ríkharðsson hóf fundinn á því að minnast Arnórs Gunnarssonar og hans góða starfs fyrir hönd sveitarfélagsins.

1.Fjallskil og réttir - Seyluhreppur - úthluti

Málsnúmer 2108061Vakta málsnúmer

Fulltrúar úr fjallskilanefnd Seyluhrepps - úthluta, komu til fundar til að ræða framtíðarfyrirkomulag rétta á svæðinu m.t.t. sauðfjárveikivarna.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að afnema Grófargilsrétt sem skilarétt í úthluta Seyluhrepps. Fjallskilanefndinni er falið að sjá um endurbyggingu réttarinnar í samvinnu við landeigendur Grófargils. Fyrir liggur framlag til efniskaupa til uppbyggingar Grófargilsréttar. Unnið verði að uppbyggingu réttaraðstöðu á Skarðsá ef tilskilin leyfi fást frá Skarðsárnefnd. Landbúnaðarnefnd skoðar fjárstuðning þegar fjárhagsáætlun framkvæmdarinnar liggur fyrir.

2.Nauðbitið land sveitarfélagsins á Hofsósi

Málsnúmer 2107103Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 5. ágúst 2021 frá Þórði Pálssyni, dýraeftirlitsmanni Matvælastofnunar þar sem farið er fram á það að landbúnaðarnefnd endurskoði þann fjölda hrossa sem búfjárleyfi sem veitt var Gunnari Jóni Eysteinssyni á Hofsósi þann 5. september 2016 gefur leyfi til. Einnig lagt fram minnisblað frá Landgræðslunni, dagsett 10. ágúst 2021 sem og bréf frá sveitarfélaginu dagsett 12. ágúst 2021, þar sem Gunnari er tilkynnt um að honum sé ekki lengur heimilt að beita opin svæði sveitarfélagsins á Hofsósi.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að segja upp gildandi búfjárleyfi fyrir 47 hross, með ársfyrirvara, þannig að leyfið fellur úr gildi þann 15. september 2022. Landbúnaðarnefnd bendir á að hægt er að sækja um nýtt búfjárleyfi á uppsagnartímanum.

3.Umsókn um búfjárleyfi

Málsnúmer 2108082Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn dagsett 11. ágúst 2021, frá Sævari Björnssyni, kt. 290572-4959, Austurgötu 5, Hofsósi um leyfi til búfjárhalds í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði. Sótt er um leyfi fyrir 10 kindum.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir umbeðnum fjölda.

4.Ársreikningur 2020 Upprekstrarfél. Eyvindarstaðarheiðar

Málsnúmer 2108052Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Upprekstrarfélags Eyvindarstaðaheiðar fyrir árið 2020.

5.Fjallskilasjóður Hofsafréttar - ársreikningur 2020

Málsnúmer 2108112Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hofsafréttar fyrir árið 2020.

Fundi slitið - kl. 16:23.