Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

217. fundur 31. mars 2021 kl. 17:00 - 18:20 á Hótel Varmahlíð
Nefndarmenn
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Jóel Þór Árnason aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Þórunn Eyjólfsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Gestur á fundinum var Kári Gunnarsson nýráðinn þjónustufulltrúi hjá sveitarfélaginu og eftirmaður Arnórs Gunnarssonar.

1.Fjallskilasamþykkt fyrir Skagafjarðarsýslu frá 2017

Málsnúmer 1912073Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðaðri fjallskilasamþykkt fyrir Skagafjarðarsýslu.
Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagða fjallskilasamþykkt fyrir Skagafjarðarsýslu með áorðnum breytingum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs falið að ljúka málinu gagnvart Akrahreppi og ráðuneyti.

2.Samningar við bændur vegna riðuniðurskurðar

Málsnúmer 2103230Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir vonbrigðum sínum hve langan tíma það hefur tekið atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að ljúka samningagerð við bændur, sem þurftu að skera niður sitt fé vegna riðusmits. Þann 3. nóvember 2020 fyrirskipaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrsta niðurskurð og nú um fjórum og hálfum mánuði seinna er fyrst verið að ganga frá samningum við bændur. Landbúnaðarnefnd leggur áherslu á að verkferlar við samningagerð þurfi að vera skýrir og eðlilegast að samningar liggi fyrir áður en niðurskurður fer fram. Jafnframt er mikilvægt að núverandi reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar verði endurskoðuð í heild sinni sem fyrst. Við þá endurskoðun er mikilvægt að bótagreiðslur taki á þeirri tekjuskerðingu sem bændur verða fyrir, kostnaði þeirra við hreinsun og vegna kaupa á nýjum fjárstofni. Einnig verði bætur greiddar vegna gripa sem felldir eru vegna sýnatöku á öðrum búum.

3.Aðalfundarboð, Veiðifélag Skagf. Svartárdeild

Málsnúmer 2103242Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð um aðalfund Svartárdeildar Veiðifélags Skagafjarðar í Árgarði, laugardaginn 10. apríl 2021.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Kára Gunnarssyni að sækja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins og fara með atkvæðisrétt þess.

4.Deildardalsrétt og umhverfi

Málsnúmer 2103271Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 23. mars 2021 frá fjallskilastjórn Deildardals, varðandi umgengni á réttarstæði Deildardalsréttar. Ábúandi Háleggsstaða hefur ekki brugðist við ítrekuðum óskum fjallskilastjórnar um að fjarlægja heyrúllur sem hann hefur látið setja niður við réttina. Óskar fjallskilastjórnin eftir að landbúnaðarnefnd beiti sér fyrir því að heyrúllurnar verði fjarlægðar.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að skora á ábúanda Háleggsstaða að fjarlægja heyrúllurnar af réttarstæðinu og veitir honum frest til 6. apríl 2021, að öðrum kosti mun nefndin sjá um að þær verði fjarlægðar á kostnað hans.

5.Beiðni um að fjarlægja heyrúllur

Málsnúmer 2103330Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 24. mars 2021 frá Páli Birgi Óskarssyni eiganda og ábúanda á Skuggabjörgum. Fer hann fram á það að Sveitarfélagið Skagafjörður fjarlægi heyrúllur af landi því sem sveitarfélagið er með á leigu fyrir fjallskilasjóð Deildardals skv. samningi frá 14. maí 2007.
Landbúnaðarnefnd mun bregðast við ef eigandi heyrúllanna hefur ekki fjarlægt þær fyrir 6. apríl 2021.

6.Upplýsingar um uppgræðslu í samstarfsverkefnum 2020

Málsnúmer 2012140Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 14. desember 2020 frá Landgræðslunni, varðandi upplýsingar um uppgræðslu í samstarfsverkefnum á árinu 2020.

7.Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um jarðalög

Málsnúmer 2101224Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um jarðalög (einföldun regluverks, vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskyldu o.fl), 375. mál.

8.Fjallskilasjóður framhluta Skagafjarðar, ársreikningur 2019

Málsnúmer 2012247Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur fjallskilasjóðs Seyluhrepps-úthluta fyrir árið 2019.

9.Ársreikningur 2019 - Fjallskilasjóður Austur-Fljóta

Málsnúmer 2012264Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur fjallskilasjóðs Austur-Fljóta fyrir árið 2019.

10.Fjallskilasjóður framhluta Skagafjarðar, ársreikningur 2020

Málsnúmer 2102062Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur fjallskilasjóðs framhluta Skagafjarðar fyrir árið 2020.
Arnór Gunnarsson þjónustufulltrúi lýkur störfum hjá sveitarfélaginu í dag, 31. mars 2021. Landbúnaðarnefnd vill koma á framfæri miklum og góðum þökkum til Arnórs fyrir mjög gott starf og ósérhlífni í þágu sveitarfélagsins og íbúa. Nefndin óskar honum alls hins besta í framtíðinni.

Fundi slitið - kl. 18:20.