Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

215. fundur 20. nóvember 2020 kl. 10:00 - 11:56 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Jóel Þór Árnason aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Jón Sigurjónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Arnór Gunnarsson starfsmaður landbúnaðarnefndar
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að setja á dagskrá mál 2011199 Lausaganga hrossa í og við Hofsós.

1.Erindi varðandi afréttargirðingar

Málsnúmer 2009183Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 16. september 2020 frá Jónínu Stefánsdóttur, þar sem hún beinir því til landbúnaðarnefndar að sjá svo um að afréttargirðingar standi uppi og séu heilar eftir að fénaði er hleypt á fjall.
Landbúnaðarnefnd beinir því til fjallskilanefnda í sveitarfélaginu að sjá svo um að afréttargirðingar séu í lagi áður en búpeningi er sleppt á fjall.

2.Breiðargerðisrétt

Málsnúmer 2008245Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 30. ágúst 2020 frá Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur, Breiðargerði, varðandi Breiðargerðisrétt. Óskar hún eftir að samkomulagi frá 11. júní 1987 milli Sigfúsar Steindórssonar þáverandi landeiganda og Lýtingsstaðahrepps um viðhald réttarinnar verði formlega rift. Réttinni hefur ekki verið við haldið um langa tíð og hún orðin léleg.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fella bókunina frá 11. júní 1987 úr gildi. Landeiganda er frjálst að ráðstafa réttinni og landinu umhverfis að vild enda réttin ekki í eigu sveitarfélagsins.

3.Lausaganga hrossa í og við Hofsós

Málsnúmer 2011199Vakta málsnúmer

Borið hefur á því að í haust að hross hafi ítrekað verið í lausagöngu í og við Hofsós.
Landbúnaðarnefnd vill ítreka við búfjáreigendur sem eru með land á leigu hjá sveitarfélaginu að þeir gæti þess að halda girðingum í lagi svo búpeningur haldist innan girðinga. Ítrekuð brot á leigusamningi geta leitt til uppsagnar samnings.

4.Fjárhagsáætlun 2021 á vegum landbúnaðarnefndar

Málsnúmer 2010100Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun 2021 fyrir málaflokka sem landbúnaðarnefnd fjallar um. Fjárhagsáætlun landbúnaðarmála í málaflokki 13 gerir ráð fyrir útgjöldum að fjárhæð 15.628 þús.kr. Landbúnaðarnefnd hefur haft á sinni könnu umsjón með minka- og refaeyðingu sem er innan fjárheimilda málaflokks 11-Umhverfismál. Áætlun 2021 gerir ráð fyrir 7.360 þús.kr. til minka- og refaeyðingar. Landbúnaðarnefnd óskar eftir því fjárhæðin verði hækkuð um 400 þús.kr. vegna minkaeyðingar.
Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagðar áætlanir og vísar þeim til afgreiðslu byggðarráðs. Landbúnaðarnefnd óskar eftir því að byggðarráð sjái til þess að eignasjóður fái fjármagn á árinu 2021 til þess að sinna aðkallandi viðhalds- og uppbyggingarverkefnum vegna skilarétta í sveitarfélaginu.

5.Tilkynning um riðu

Málsnúmer 2011174Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 17. nóvember 2020 frá Jóni Kolbeini Jónssyni, héraðsdýralækni Norðvesturumdæmis þar sem tilkynnt er um að greinst hafi riða í sauðfé á bænum Minni-Ökrum, Akrahreppi.
Landbúnaðarnefnd leggur áherslu á að greining sýna hjá Tilraunastöðinni á Keldum verði hraðað sem kostur er og æskilegast er að henni verði lokið fyrir áramót. Einnig er mjög mikilvægt að bændur fái niðurstöður við lok greiningar hver sem niðurstaðan er vegna þeirrar óvissu sem margir bændur búa við í Tröllaskagahólfi.

6.Starfshópur, girðingar, umbætur og hagræðing

Málsnúmer 2009281Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 28. september 2020 frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er um að settur hafi verið saman starfshópur á vegum allra ráðuneyta ríkisstjórnarinnar með það markmið að móta samstarf helstu aðila sem hagsmuna hafa að gæta varðandi umbætur og hagræðingu vegna girðinga og hvernig þetta samstarf verði best unnið á svæðisvísu.

7.Umdæmi héraðsdýralækna verða fimm

Málsnúmer 2009138Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 14. september 2020 frá Matvælastofnun þar sem tilkynnt er um að umdæmum héraðsdýralækna Matvælastofnunar verði fækkað úr sex í fimm. Vesturumdæmi er skipt upp, þannig að Snæfellsnes og Borgarfjörður tilheyra nú S-Vesturumdæmi og Dalir og Vestfirðir tilheyra N-Vesturumdæmi.

8.Fjallskilasjóður Vestur-Fljóta, ársreikningur 2019

Málsnúmer 2011009Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Vestur-Fljóta fyrir árið 2019.

9.Ársreikningur 2019 Fjallskilasj. Hóla- og Viðvíkurdeilda

Málsnúmer 2010032Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hóla- og Viðvíkur fyrir árið 2019.

Fundi slitið - kl. 11:56.