Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

201. fundur 18. október 2018 kl. 13:00 - 14:35 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Jóel Þór Árnason aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Þórunn Eyjólfsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Arnór Gunnarsson starfsmaður landbúnaðarnefndar
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá

1.Fyrirspurn um upprekstur á Hofsafrétt

Málsnúmer 1806255Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. ágúst 2018 frá Stefaníu Fjólu Finnbogadóttur og Guðmundi Magnússyni varðandi upprekstur á Hofsafrétt.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að svara erindinu í samræmi við það sem rætt var á fundinum.

2.Uppsögn á leigusamningi um land á Hofsósi - spilda no. 20

Málsnúmer 1809190Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. september 2018 frá Hilmari Símonarsyni þar sem hann segir upp leigusamningi um spildu númer 20 á Hofsósi fyrir hönd dánarbús Símonar Inga Gestssonar.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að uppsögn samningsins gildi frá og með 1. október 2018. Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd að landið verði auglýst til útleigu.

3.Bréf sveitarstjóra til nefnda v jafnréttisáætlunar

Málsnúmer 1810007Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sigfúsi Inga Sigfússyni sveitarstjóra, dagsett 24. september 2018 varðandi endurskoðun á jafnréttisáætlun sveitarfélagsins. Óskað er eftir að fastanefndir sveitarfélagsins taki jafnréttisáætlunina til umfjöllunar og komi ábendingum og athugasemdum á framfæri við félags- og tómstundanefnd (jafnréttisnefnd) eigi síðar en 1. nóvember 2018.
Landbúnaðarnefnd fagnar endurskoðun jafnréttisáætlunarinnar sem er mikilvægt verkfæri í stjórnsýslu sveitarfélagsins.

4.Umsókn um búfjárleyfi

Málsnúmer 1810069Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds frá Guðbjörgu Særúnu Björnsdóttur, kt. 110765-5849, dagsett 12. október 2018. Sótt er um leyfi fyrir 10 kindur.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir 10 kindum.

5.Fjárhagsáætlun 2019 - málaflokkur 11 og 13 - Landbúnaðarnefnd

Málsnúmer 1809234Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um ramma fjárhagsáætlunar 2019 fyrir landbúnaðarmál undir málaflokki 13 og vegna minka- og refaeyðingu undir málaflokki 11700.
Landbúnaðarnefnd beinir því til eignasjóðs að huga að ástandi og viðhaldsþörf rétta í sveitarfélaginu og gera ráð fyrir fjármagni til þeirra í fjárhagsáætlun 2019. Einnig vill landbúnaðarnefnd óska eftir því við byggðarráð að sett verði aukið fé í minka- og refaeyðingu þar sem fram hafa komið vísbendingar stækkun minkastofnsins.

6.Lausaganga búfjár og fjallskil

Málsnúmer 1807173Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 24. júlí 2018 frá Matvælastofnun varðandi lausagöngu búfjár, fjallskil o.fl.
Landbúnaðarnefnd vísar í bókun fundar nefndarinnar þann 9. júlí s.l., mál 1807058 sem snýr beint að lausagöngu búfjár.

7.Tilkynning um riðusmit

Málsnúmer 1809147Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 12. september 2018 frá Jóni Kolbeini Jónssyni héraðsdýralækni Norðurlands vestra, þar sem tilkynnt er um staðfestan grun um klassíska riðu á bænum Vallanesi, 561 Varmahlíð.
Landbúnaðarnefnd harmar að upp hafi komið riðusmit í Vallanesi og vill óska eftir því að Jón Kolbeinn Jónsson komi á fund nefndarinnar til að ræða riðumál almennt.

8.Ársreikningur 2017 Fjallsk.sjóður Skarðshrepps

Málsnúmer 1810035Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2017 fyrir Fjallskilasjóð Skarðshrepps.

9.Fjallskilasjóður Sauðárkróks - ársreikningur 2017

Málsnúmer 1808047Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2017 fyrir Fjallskilasjóð Sauðárkróks.

10.Ársreikningur 2017 Fjallsk.sjóður Hóla- og Viðvíkurhr.

Málsnúmer 1808053Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2017 fyrir Fjallskilasjóð Hóla- og Viðvíkurhrepps.

11.Ársreikningur 2017 Fjallsk.sjóður V-Fljóta

Málsnúmer 1807129Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2017 fyrir Fjallskilasjóð Vestur-Fljóta.

12.Ársreikningar 2016 og 2017 Fjallsk.sjóður Skefilsstaðahrepps

Málsnúmer 1807137Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar ársreikningar 2016 og 2017 fyrir Fjallskilasjóð Skefilsstaðahrepps.

13.Fjallskilasjóður Hofsafréttar - ársrreikningur 2017

Málsnúmer 1810056Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2017 fyrir Fjallskilasjóð Hofsafréttar.

Fundi slitið - kl. 14:35.