Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

193. fundur 06. september 2017 kl. 15:00 - 16:02 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jóhannsson formaður
  • Jóhannes H Ríkharðsson varaform.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson ritari
  • Stefán Vagn Stefánsson sveitarstj.ftr.
  • Sigríður Svavarsdóttir sveitarstj.ftr.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Helga S Bergsdóttir Stjórnsýsluritari
Dagskrá
Sameiginlegur fundur landbúnaðarnefndar og sveitarstjórnar.
Fundinn sátu auk fyrrgreindra, sveitarstjórnarfulltrúarnir: Þórdís Fribjörnsdóttir (B), Viggó Jónsson (B), Sigríður Magnúsdóttir (B), Gunnsteinn Björnsson (D)

1.Staða sauðfjárbænda

Málsnúmer 1708190Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar hvetur til samræmdra aðgerða hagsmunaaðila til að taka á þeirri grafalvarlegu stöðu sem uppi er í sauðfjárrækt á Íslandi nú þegar allt að þriðjungslækkun afurðaverðs blasir við sauðfjárbændum.

Skagafjörður er eitt öflugasta landbúnaðarhérað landsins og fyrir utan fjölmörg bein störf í héraðinu við landbúnað, þá skapar framleiðslan einnig mörg störf í úrvinnslu landbúnaðarafurða, þjónustu við landbúnað sem og við rannsóknir, þróun og nýsköpun í matvælaframleiðslu.

Ef verðlækkanir til bænda á sauðfjárafurðum verða að veruleika eru allar forsendur fyrir rekstri sauðfjárbúa brostnar og ljóst að margir sauðfjárbændur munu þurfa að bregða búi. Afleiðingarnar eru jafnframt þær að mun fleiri afleidd störf munu fylgja með þar sem margir byggja afkomu sína af vinnu við afurðarstöðvar, matvælarannsóknir og ýmis konar þjónustu við bændur. Að óbreyttu blasir því við hrun í greininni, fjöldagjaldþrot bænda og stórfelld byggðaröskun með tilheyrandi samfélagslegum áhrifum fyrir hinar dreifðu byggðir landsins.

Boðaðar aðgerðir landbúnaðarráðherra leysa því miður ekki vanda sauðfjárbænda nema að litlu leyti og ljóst er að verið er að velta vandanum yfir til næstu ára. Nauðsynlegt er að taka á birgðavandanum sem komið hefur til vegna lokana erlendra markaða, m.a. vegna viðskiptabanns á Rússland, vegna Úkraínudeilunnar, sterks gengis krónunnar og tæknilegra hindrana á útflutningi.

Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á Ríkisstjórn Íslands og sláturleyfishafa að koma til móts við hugmyndir Landssamtaka sauðfjárbænda og Bændasamtaka Íslands og sammælast um raunhæfar aðgerðir sem taka heildstætt á vanda greinarinnar og koma þannig í veg fyrir að ein af grunnstoðum byggðar í landinu bresti með tilheyrandi afleiðingum.

Fundi slitið - kl. 16:02.