Fara í efni

Fræðslunefnd

17. fundur 07. júlí 2023 kl. 15:00 - 15:30 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Regína Valdimarsdóttir formaður
  • Hrund Pétursdóttir varaform.
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Sólveig Arna Ingólfsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Ásrún Leósdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
  • Ragnar Helgason sérfræðingur á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Aðgerðir til að bæta starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 2210285Vakta málsnúmer

Á sl. ári var ráðist í ýmsar aðgerðir í leikskólamálum í Skagafirði til að bæta starfsumhverfi leikskólanna, efla jákvæða vinnustaðamenningu og laða að starfsfólk. Um er að ræða eftirfarandi aðgerðir:

- Starfsmenn leikskóla fá 50% afslátt af dagvistunargjöldum.
- Undirbúningstímar veittir til leikskólaliða og ófaglærða starfsmanna sem starfað hafa í 3 ár eða lengur.
- Ráðning á fólki í sveigjanlegar afleysingar, s.s. vegna fjarveru starfsmanna sem eru í námi.
- Ráðning á nýrri 50% stöðu aðstoðarleikskólastjóra og bætt við 50% stöðu deildarstjóra námsaðlögunar í Ársölum.
- Reglubundin mannauðsráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk.
- Innleiðing á stefnu og viðbrögðum vegna veikinda og endurkomu til vinnu svo unnt sé að bregðast við og styðja starfsfólk með viðeigandi hætti.
- Starfsmenn sem ekki eiga börn á leikskóla fá tvo frídaga á þessu skólaári sem leitast verður við að veita í kringum jól og áramót eða í kringum páska.
- Niðurfelling dvalargjalda til foreldra sem geta haft börnin sín heima þegar óskað verður eftir skráningu barna í kringum jól, áramót eða páska.
- Styrkur til leikskóla Skagafjarðar vegna námsferðar leikskólanna að fjárhæð 30.000 kr. fyrir hvern starfsmann sem fer í ferðina. Leikskólarnir fá greiddan styrkinn.

Hluti af ofangreindum aðgerðum voru tímabundnar til 12 mánaða sem endurskoða ætti í ljósi reynslunnar sem af þeim hlytist. Á fundi fræðslunefndar 5. júní sl. voru kynntar niðurstöður viðhorfskönnunar meðal starfsfólks leikskóla sem hluti af rýni og mati af árangri aðgerða. Í niðurstöðunum kemur fram að meirihluti svarenda eru ánægðir með aðgerðirnar og segja þær hafa skilað tilætluðum árangri. Jafnframt er meirihluti svarenda þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að halda aðgerðunum áfram.
Í ljósi ofangreinds leggur meirihluti fræðslunefndar, Regína Valdimarsdóttir Sjálfstæðisflokki, og Hrund Pétursdóttir Framsóknarflokki, fram tillögu um óbreyttar og áframhaldandi aðgerðir í leikskólum Skagafjarðar til næstu 12 mánaða. Það er frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024. Á því tímabili mun jafnframt fara fram frekara endurmat á aðgerðunum og mælt hverjar þeirra hafi skilað tilsettum árangri og betra starfsumhverfi fyrir bæði starfsfólk og börn leikskólanna.

Fræðslunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðaráðs.

Fundi slitið - kl. 15:30.