Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

178. fundur 30. mars 2022 kl. 16:15 - 17:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Auður Björk Birgisdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Erla Hrund Þórarinsdóttir sérfræðingur á fjölskyldusviði
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
  • Hólmfríður Dröfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Bogdís Una Hermannsdóttir áheyrnarftr. leikskóla
Fundargerð ritaði: Erla Hrund Þórarinsdóttir Sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Birkilundur - breytingar á sumarorlofi

Málsnúmer 2202231Vakta málsnúmer

Við samþykkt skóladagatals Birkilundar fyrir starfsárið 2021-2022 láðist að setja inn dagsetningu lokunar vegna sumarleyfis sumarið 2022. Lagt er til að það verði eins og undangengin ár, þ.e. leikskólinn loki kl. 12 á hádegi föstudaginn 8. júlí og opni aftur kl. 12 á hádegi mánudaginn 15. ágúst. Tillagan hefur verið lögð fyrir foreldraráð sem gerir ekki athugasemdir við hana. Nefndin samþykkir tillöguna.

2.Lestrarstefna

Málsnúmer 2203121Vakta málsnúmer

Um þessar mundir eru fimm ár liðin frá því að Sveitarfélagið Skagafjörður setti sér lestrarstefnu fyrir leik- og grunnskóla Skagafjarðar. Nefndin óskar eftir umfjöllun og greinargerð um hvernig innleiðing stefnunnar hefur gengið og framvindu hennar. Jafnframt er óskað eftir umfjöllun um önnur verkefni sem hvetja til enn frekari lesturs.

3.Reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn

Málsnúmer 2203138Vakta málsnúmer

Reglur Sveitarfélagsins Skagafjarðar um framkvæmd frístundaþjónustu við fötluð börn lagðar fram. Reglur þessar byggja á lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins frá 20. desember 2019 um framkvæmd frístundaþjónustu. Nefndin fagnar þessum reglum og hvetur til enn frekara starfs til samþættingar í þjónustu við íbúa. Reglunum vísað til byggðarráðs.

4.Pisa könnun 2022. Bréf frá ráðherra

Málsnúmer 2203038Vakta málsnúmer

Erindi frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem hvatt er til að aðilar skólasamfélagsins nálgist Pisa könnunina, sem lögð er fyrir í ár, með jákvæðu hugarfari. Minnt er á að góð þátttaka í Pisa skiptir miklu til að tryggja það að niðurstöður endurspegli stöðu nemenda á Íslandi á tilteknum sviðum náms. Nefndin tekur undir erindi ráðherra.

5.Ertu ókei Vitundarvakning um mikilvægi geðræktar

Málsnúmer 2202198Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá mennta- og barnamálaráðuneyti þar sem kynnt er verkefnið ,,Ertu ókei" sem ætlað er að auka vitund á mikilvægi geðræktar og því að börn og ungmenni ræði líðan sína við aðila sem þau treysta.

Fundi slitið - kl. 17:00.