Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

163. fundur 02. desember 2020 kl. 16:15 - 17:30 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Erla Hrund Þórarinsdóttir verkefnastjóri
  • Steinunn Ragnheiður Arnljótsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Ágúst Ingi Ágústsson áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Dagný Huld Gunnarsdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
  • Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
  • Jóhann Bjarnason
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að taka inn mál 2009119 Skólaakstur á Sauðárkróki á dagskrá með afbrigðum.

1.Fjárhagsáætlun 04 2021

Málsnúmer 2010097Vakta málsnúmer

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun árið 2021 fór fram í sveitarstjórn fimmtudaginn 26. nóvember s.l. Á fundinum var til umræðu bókun fræðslunefndar frá 18.11. vegna fjárhagsáætlunar fræðslumála þar sem gert er ráð fyrir að farið verði í ítarlega rekstrarskoðun stofnana fræðslumála á fyrstu þremur mánuðum næsta árs með það að markmiði að ná fram hagræðingu í rekstri fyrir skólaárið 2021-2022. Fræðslunefnd fór yfir áætlunina eins og hún liggur fyrir. Nefndin ítrekar að hún mun leggja vinnu í að skoða fjármál stofnana sbr. bókun síðasta fundar.
Fræðslunefnd vísar áætluninni til byggðarráðs og síðari umræðu í sveitarstjórn.

2.Frístund - niðurfelling gjalda vegna Covid -19

Málsnúmer 2011251Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd leggur til við byggðarráð að samþykkt verði að fella niður gjöld í frístund í grunnskólum Skagafjarðar vegna barna sem voru heima á tímabilinu 3. nóvember til 18. nóvember s.l. vegna takmarkana af völdum Covid. Upphæðin nemur allt að 200.000 krónum í heildina.

3.Skólaakstur á Sauðárkróki

Málsnúmer 2009119Vakta málsnúmer

Á fundi sínum fyrr í dag gerði byggarráð eftirfarandi bókun: ,,Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að hefja almenningssamgöngur á Sauðárkróki, í tilraunaskyni til 26. mars 2021 og einungis innan þéttbýlisins. Skólabörnum er heimilt að nýta sér þessar ferðir og hafa þar forgang umfram fullorðna. Allar ferðir þessara almenningssamgangna á Sauðárkróki skulu vera gjaldfrjálsar á tímabilinu. Lögð skal áhersla á að öryggi þeirra sem nýta sér slíkar samgöngur verði sem best tryggðar, m.a. með reglum um hámarkshraða.
Ferðir almenningssamgangna á Sauðárkróki skulu auglýstar í Sjónhorni. Að tilrauninni lokinni skal byggðarráð meta árangur hennar og hvort æskilegt sé, með tilliti til mismunandi þátta, s.s. kostnaðar, notkunar, stefnu um heilsueflingu og fleiri þátta sem eðlilegt er að miða við, að halda áfram með verkefnið."
Með hliðsjón af bókun byggðarráðs samþykkir fræðslunefnd að fella niður áform um skólaakstur sbr. bókun nefndarinnar 16. október s.l.

4.Starfsáætlanir grunnskóla 2020 - 2021

Málsnúmer 2011232Vakta málsnúmer

Lagðar fram starfsáætlanir grunnskóla fyrir skólaárið 2020-2021 til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:30.