Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

129. fundur 28. febrúar 2018 kl. 13:00 - 14:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir varaform.
  • Sigurjón Þórðarson ritari
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir skólafulltrúi
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Bertina Rodriguez sérfræðingur fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Umsókn um flutning á barni á milli skólahverfa

Málsnúmer 1801183Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók

2.Skólaakstur útboð 2018-2019

Málsnúmer 1801176Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að skólaakstur verði boðinn út til næstu 5 ára, frá ágúst 2018 til maíloka 2023.
Samhliða útboðinu verða gildandi reglur um skólaakstur í dreifbýli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og reglur um flutning á milli skóla endurskoðaðar.
Óskað verður eftir því að Stoð ehf. verkfræðistofa á Sauðárkróki annist framkvæmd útboðsins og að höfð verði hliðsjón af útboðsgögnum frá árinu 2013 sem Stoð ehf. annaðist.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og starfsmenn þeirra vinna náið með Stoð ehf.
Við vinnslu útboðsgagna skal hafa hliðsjón af gildandi lögum og reglugerðum eins og við á. Þá skal haft samráð við VÍS tryggingarfélag vegna trygginga og öryggismála.
Í útboðsgögnum verða aðalleiðir og undirleiðir skilgreindar. Lagt er til að heimilt verði að bjóða verð í heildarakstur, svæðaakstur eða einstakar leiðir. Sá fyrirvari er gerður að í einhverjum tilvika verði hugsanlega samið beint við foreldra um akstur.
Tillagan samþykkt.

3.Reglur um flutning barna á milli skóla endurskoðaðar 2018

Málsnúmer 1802002Vakta málsnúmer

Endurskoðun á reglum um flutning barna á milli skóla rædd. Lagt er til að reglurnar heiti framvegis reglur um skólasókn í öðru skólahverfi í Sveitarfélaginu Skagafirði. Fræðslunefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á reglunum.

Fundi slitið - kl. 14:30.