Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

21. fundur 07. mars 2024 kl. 15:00 - 16:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Sigurður Hauksson varaform.
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Ragnar Helgason sérfræðingur á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Páskamót Molduxa og páskaball körfuknattleiksdeildar Tindastóls

Málsnúmer 2402267Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni Körfuknattleiksdeildar Tindastóls um gjaldfrjáls afnot af Íþróttahúsinu á Sauðárkróki 30. mars n.k., vegna páskamóts Molduxa og páskaballs körfuknattleiksdeildarinnar. Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks samþykkja gjaldfrjáls afnot vegna páskamótsins.
Samkvæmt gjaldskrá kostar leiga vegna skemmtana/balla kr. 368.555 pr. sólarhring sem ætlað er að standa straum af vinnu við uppsetningu, gæslu/eftirlits á meðan á viðburði stendur og frágangi/þrifum að honum loknum. Auk þessa fellur undir þetta leiga á búnaði sem og kostnaður við endurnýjun tækja/tóla þar sem öllum viðburðum fylgir ákveðið slit á eignum hússins. Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks samþykkja að fella niður leiguna að mestu en að deildin beri kostnað af vinnulið starfsmanns að upphæð kr. 55.629. Skilyrði er að öll uppsetning og frágangur verði unnin af hálfu deildarinnar.

Anna Lilja Guðmundsdóttir fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Íþróttahús gegna vegamiklu hlutverki þegar kemur að Íþróttastarfi barna- og ungmenna í heilsueflandi samfélagi. Þegar skemmtanaviðburðir sem þessi eru haldnir í íþróttahúsinu þurfa æfingar og tímar sem börn og ungmenni hafa til að stunda sitt lýðheilsustarf að víkja í að meðaltali 1-2 daga. Skemmtanahald í íþróttahúsi kemur niður á íþróttastarfi barnanna og tel ég því ekki ábyrgt að veita umbeðinn styrk á niðurfellingu á leigu á Íþróttahúsi Sauðárkróks vegna skemmtanahalds þegar um hagnaðardrifinn viðburð er að ræða.

2.Leiga á íþróttahúsi í tengslum við viðburðinn Tindastuð

Málsnúmer 2401309Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni Skíðadeilar Tindastóls um gjaldfrjáls afnot af Íþróttahúsinu á Sauðárkróki 23. mars n.k., vegna Tindastuðs.
Samkvæmt gjaldskrá kostar leiga vegna skemmtana/balla kr. 368.555 pr. sólarhring sem ætlað er að standa straum af vinnu við uppsetningu, gæslu/eftirlits á meðan á viðburði stendur og frágangi/þrifum að honum loknum. Auk þessa fellur undir þetta leiga á búnaði sem og kostnaður við endurnýjun tækja/tóla þar sem öllum viðburðum fylgir ákveðið slit á eignum hússins. Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks samþykkja að fella niður leiguna að mestu en að deildin beri kostnað af vinnulið starfsmanns að upphæð kr. 55.629. Skilyrði er að öll uppsetning og frágangur verði unnin af hálfu deildarinnar.

Anna Lilja Guðmundsdóttir fulltrúi Byggðalista ásamt Álfhildi Leifsdóttur fulltrúa VG og óháðra, óska bókað:
Íþróttahús gegna vegamiklu hlutverki þegar kemur að Íþróttastarfi barna- og ungmenna í heilsueflandi samfélagi. Þegar skemmtanaviðburðir sem þessi eru haldnir í íþróttahúsinu þurfa æfingar og tímar sem börn og ungmenni hafa til að stunda sitt lýðheilsustarf að víkja í að meðaltali 1-2 daga. Skemmtanahald í íþróttahúsi kemur niður á íþróttastarfi barnanna og teljum við því ekki ábyrgt að veita umbeðinn styrk á niðurfellingu á leigu á Íþróttahúsi Sauðárkróks vegna skemmtanahalds þegar um hagnaðardrifinn viðburð er að ræða.
Sigurður Bjarni Rafnsson og Sigurður Hauksson véku af fundi undir þessum lið. Í stað þeirra komu varamenn, Hrund Pétursdóttir og Sandra Björk Jónsdóttir.

3.Frjálsíþróttaþing á Sauðárkróki

Málsnúmer 2402265Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá formanni Frjálsíþróttasambands Íslands þar sem fram kemur að halda eigi frjálsíþróttaþing á Sauðárkróki 15.-16. mars nk. Óskað er eftir því að sveitarfélagið bjóði þinggestum upp á kvöldverð að lokinni þingsetningu.
Nefndin fagnar því að frjálsíþróttaþing sé haldið á Sauðárkróki og samþykkir samhljóða að útvega aðstöðu fyrir frjálsíþróttaþingið en sér sér ekki fært um að verða við beiðni um kvöldverð að lokinni þingsetningu.

4.Samráð; Áform um frumvarp til laga um æskulýðs og frístundastarf

Málsnúmer 2312213Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá 22. desember 2023 þar sem mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 264/2023, „Áform um frumvarp til laga um æskulýðs og frístundastarf“. Umsagnarfrestur var til 26. janúar sl. Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um æskulýðs- og frístundastarf til samræmis við Barnasáttamála Sameinuðu þjóðanna og lög um samþættingu þjónustu í þágu barna. Þörf er á nýrri heildstæðri löggjöf þar sem núverandi æskulýðslög hafa ekki sætt endurskoðun frá árinu 2007.

Nefndin fagnar frumvarpi til laga um æskulýðs og frístundastarf. Í stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030 sem er vegvísir til framtíðar kemur fram að mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst leggja áherslu á til að styðja við skipulagt félags- og tómstundastarf þar sem börn og ungmenni hafa tækifæri til að taka þátt á eigin forsendum, þroskast í öruggu umhverfi og styðja um leið við þau grunngildi sem þátttaka í lýðræðissamfélagi felur í sér. Því miður hefur aldurinn 15-18 ára oft orðið útundan í slíku starfi þar sem ungmennahús eru ekki starfrækt í öllum sveitarfélögum. Markmiðið frumvarpsins er að styðja við tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna, faglegan vettvang frístundastarfs og starfsemi félagsmiðstöðva á landsvísu þar sem aukið vægi og áhersla er lögð á að öllum börnum og unglingum standa til boða skipulagt frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi sem tekur mið af aldri þeirra og þroska og er það mjög þarft málefni til að efla um land allt.

5.Ósk um lengdan opnunartíma sundlaugarinnar á Hofsósi sumarið 2024

Málsnúmer 2402263Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi um lengri opnunartíma sundlaugarinnar á Hofsósi mánuðina júní, júlí og ágúst. Farið er fram á að laugin verði opnuð klukkan 7:00 í stað 9:00. Með hliðsjón af hve fáir hafa nýtt sér þennan opnunartíma undangengin sumur sjá fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sér ekki fært að verða við erindinu. Kostnaður vegna lengri opnunar á Hofsósi myndi hafa í för með sér kostnaðarauka sem gæti hlaupið á u.þ.b. 1,2 milljón króna yfir þennan tíma sem óskað er eftir. Ekki var gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun. Bent er á að nú er fjöldi opnunartíma lauga sem sveitarfélagið rekur sá sami, eða 84 klukkustundir í viku hverri á þessu tímabili.

Álfhildur Leifsdóttir VG og óháðum og Anna Lilja Guðmundsdóttir Byggðalista óska bókað:
Sundlaugin á Hofsósi á ekki síst að vera til að þjónusta íbúa þar og í nágrenni. Lengdur opnunartími sundlaugarinnar stuðlar að aukinni lýðheilsu í heilsueflandi samfélagi.
Það er því miður að lengdum opnunartíma sé hafnað í sundlauginni á Hofsósi á meðan sá opnunartími sem óskað er eftir á virkum dögum þar er í sundlaugum Varmahlíðar og Sauðárkróks yfir sumartímann.

6.Sæluvikutónleikar - Árgangaball

Málsnúmer 2401208Vakta málsnúmer

Áður tekið fyrir á fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 5. febrúar sl. þar sem nefndin vísaði beiðni um afnot af íþróttahúsi til félagsmála- og tómstundanefndar.

Lagður fram tölvupóstur frá Karli Jónssyni, fyrir hönd Herramanna, þar sem óskað er eftir afnotum að íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust vegna dansleiks í Sæluviku. Nefndin fagnar framtakinu en hafnar beiðninni samhljóða með vísan í gjaldskrá íþróttamannvirkja. Mikilvægt er að árétta að afnot af íþróttahúsinu til slíkra viðburða felur óhjákvæmilega í sér kostnað sem fellur á íþróttahúsið. Kostnaður þessi er fyrst og fremst aukinn launakostnaður vegna uppsetningar á sviði, lagningar hlífðarlags á gólf, skreytinga og ljósabúnaðar, þrifa, aukins eftirlits á meðan á leigu stendur o.fl. Vegna þessa hefur verið sett sértök gjaldskrá fyrir útleigu til ýmissa menningarviðburða/dansleikja. Gjaldskránni er ætlað að koma að einhverju leyti til móts við þann kostnað sem slík úleiga felur í sér.

7.Yfirlit reksturs málaflokks 06 á fjórða ársfjórðungi 2023

Málsnúmer 2403037Vakta málsnúmer

Yfirlit yfir rekstur málaflokks 06, frístunda- og íþróttamál á fjórða ársfjórðungi 2023 lagt fram til kynningar.

8.Yfirlit reksturs málaflokks 02 á fjórða ársfjórðungi 2023

Málsnúmer 2403034Vakta málsnúmer

Yfirlit yfir rekstur málaflokks 02, félagsþjónustu á fjórða ársfjórðungi 2023 lagt fram til kynningar.

9.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til laga um breytingu á barnalögum (greiðsla meðlags)

Málsnúmer 2402139Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar 112. mál, frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003 (greiðsla meðlags). Lagt fram til kynningar.

10.Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu

Málsnúmer 2403003Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála dags. 29.02.2024. Óskað er eftir því að sveitarfélagið svari spurningalista Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV). Spurningalistinn snýr að reglum um stoð- og stuðningsþjónustu sem sveitarfélögum er annars vegar skylt og hins vegar heimilt að setja samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

11.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar 2024

Málsnúmer 2401165Vakta málsnúmer

Lagt fram eitt mál. Fært í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 16:45.