Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

16. fundur 28. september 2023 kl. 15:00 - 16:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Sigurður Hauksson varaform.
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Styrkbeiðni Stígamót

Málsnúmer 2309008Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Stígamótum vegna starfsemi samtakanna. Nefndin telur sér ekki fært að veita styrk að þessu sinni en óskar Stígamótum alls góðs í störfum sínum.

2.Reglur Skagafjarðar um notendasamninga

Málsnúmer 2306220Vakta málsnúmer

Lagðar fram nýjar, ósamþykktar reglur Skagafjarðar um notendasamninga sbr. 28.gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 10.gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Við framkvæmd reglna þessara skal framfylgja þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist og þá sérstaklega samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Reglurnar voru unnar af aðilum fagráðs málefni fatlaðs fólks sem samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti í ágúst sl. og vísaði þeim til umfjöllunar framkvæmdaráðs og til afgreiðslu hjá hverri sveitarstjórn aðildarfélaga þjónustusamnings um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra. Framkvæmdaráð fjallaði um reglunar á fundi sínum 11.september sl. Málið áður á dagská félagsmála- og tómstundanefndar 26.júní sl.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til afgreiðslu í byggðaráði.

3.Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Skagafirði 2023-2026

Málsnúmer 2309073Vakta málsnúmer

Samningur við Félag eldri borgara í Skagafirði sem fyrirhugað er að skrifa undir þann 2. október nk. lagður fram til kynningar. Samningurinn gildir til loka september 2026.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til afgreiðslu í byggðaráði.

4.Fyrirspurn frá VG og Óháðum ásamt Byggðalista um tillögu um matarþjónustu eldri borgara

Málsnúmer 2309255Vakta málsnúmer

VG og Óháð ásamt Byggðalista óska eftir því að fá upplýsingar um hvar vinnu tillagan ,,Matarþjónusta - Eldri borgarar´´ sem samþykkt var á fundi Félagsmála- og tómstundanefnd þann 1. desember síðast liðinn sé stödd? Þar samþykkir nefndin að beita sér fyrir samráði við eldri borgara í Skagafirði um mögulegt fyrirkomulag matarþjónustu svo unnt sé að koma í framkvæmd þeirri lögbundnu grunnþjónustu að allir eldri borgarar í Skagafirði hefi kost á því að fá keyptan heitan mat með forgöngu sveitarfélagsins. VG og Óháð ásamt Byggðalista hafa lagt mikla áherslu á að Skagafjörður sinni matarþjónustu fyrir alla eldri borgara í Skagafirði en ekki einungis þeim sem búa á Sauðárkróki. Í kjölfar samráðsferlis átti að kynna nefndinni niðurstöður. Í framhaldi átti að taka ákvörðun um hvaða útfærslur á matarþjónustu væri unnt að bjóða eldri borgurum í Skagafirði með það að markmiði að þjónustan hæfist eigi síðar en í ágústmánuði 2023.

Meirihluti félagsmála- og tómstundanefndar leggur mikla áherslu á að hleypt sé af stokkunum reynsluverkefni um heppilegasta fyrirkomulag matarþjónustu fyrir eldri borgara í dreifbýli og þéttbýli Skagafjarðar. Vegna mikils álags á starfsfólk félagsþjónustu Skagafjarðar í sumar hefur því miður ekki reynst unnt að fylgja verkefninu nægjanlega eftir en meirihlutinn fagnar því að framundan sé samráðsferli við öldungaráð Skagafjarðar um málið og auglýsing um þátttöku í reynsluverkefninu fylgi strax í kjölfarið.
Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 tiltaka að sveitarstjórn skuli sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum, m.a. heimaþjónusta, félagsráðgjöf og heimsending matar. Ekki er tilgreint nánar um fyrirkomulag þjónustunnar eða greiðsluskiptingu á milli þjónustuþega annars vegar og þjónustuveitenda hins vegar.
Meirihluti félagsmála- og tómstundanefndar leggur áherslu á að fylgt sé fyrri ákvörðunum nefndarinnar frá m.a. 7. fundi hennar 1. desember sl. og 11. fundi 13. apríl sl., um að heimsendur matur verði í boði gegn greiðslu, líkt og þekkist hjá mörgum sveitarfélögum þar sem innheimt er fyrir mat og akstur. Ljóst er að akstur um víðfeðmt hérað getur valdið miklum kostnaði og getur jafnframt verið ákveðinn þröskuldur hvað framreiðslu matarins varðar. Því er nauðsynlegt að skoða allar færar leiðir til að tryggja skynsamlega útfærslu til framtíðar og að kostnaði vegna veittrar þjónustu sé haldið í lágmarki.

Nefndin felur starfsmönnum að auglýsa eftir þátttakendum í verkefnið sem fyrst og ákvarðanir um næstu skref verkefnisins teknar á fundi nefndarinnar í nóvember.

5.Ungmennaþing haustið 2023

Málsnúmer 2305176Vakta málsnúmer

Ungmennaþing á vegum SSNV verður haldið þann 5. október nk. á Blönduósi. Markmið þingsins er að valdefla ungt fólk í landshlutanum og standa að vettvangi þar sem þeim gefst tækifæri til þess að tjá skoðanir sínar. Þemað á þessu fyrsta ungmennaþingi SSNV verður umhverfismál og nýsköpun. Ungmennaþing hefur verið kynnt fyrir Ungmennaráði Skagafjarðar. Frá Skagafirði munu mæta 4-5 ungmenni auk frístundastjóra.
Nefndin fagnar framtaki SSNV.

6.Tómstundadagurinn 2023

Málsnúmer 2309261Vakta málsnúmer

Tómstundadagurinn í ár verður haldinn í Hinu húsinu í Reykjavík, föstudaginn 13. október kl. 8:45-12:00 og einnig í streymi. Viðburðurinn er fyrir öll sem starfa á vettvangi frítímans, hvort sem það er innan sveitarfélaganna eða í frjálsum félagasamtökum. Á dagskrá í ár eru erindi sem öll tengjast frístundastarfi og farsæld barna.
Nefndin hvetur áhugasöm að kynna sér dagskrá tómstundadagsins.

7.Fjárhagsáætlun 2024 - málaflokkur 02

Málsnúmer 2309256Vakta málsnúmer

Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2024. Fyrsta tillaga að skiptingu fjármuna á milli stofnana félagsmála- og tómstundamála yfirfarin. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu stafsmanna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir framlagðan fjárhagsramma 2024 og vísar til umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar.

8.Fjárhagsáætlun 2024 - málaflokkur 06

Málsnúmer 2309257Vakta málsnúmer

Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2024. Fyrsta tillaga að skiptingu fjármuna á milli stofnana félagsmála- og tómstundamála yfirfarin. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu stafsmanna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir framlagðan fjárhagsramma 2024 og vísar til umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar.

9.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar 2023

Málsnúmer 2301145Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.
Þorvaldur Gröndal vék af fundi undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 16:45.