Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

269. fundur 25. september 2019 kl. 16:00 - 16:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Eyrún Sævarsdóttir varam.
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
  • Regína Valdimarsdóttir
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Samkvæmt samþykktum Sveitarfélagsins Skagafjarðar skipar Akrahreppur áheyrnarfulltrúa í félags- og tómstundanefnd. Guðrún Helga Jónsdóttir sat fundinn f.h. Akrahrepps.

1.Íþróttir og tómstundir á skólaaksturstíma í GAV

Málsnúmer 1812198Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tvö minnisblöð. Annað um haustsamverur í Grunnskólanum austan Vatna og hitt um möguleika til íþróttaæfinga á skólatíma. Frístundastjóri fór yfir málið. Félags- og tómstundanefnd samþykkir þær tillögur sem fram koma í minnisblöðunum og sem lúta m.a. að seinkun skólaaksturs á mánudögum vegna íþróttaæfinga og jafnframt hugmyndir um að auka tíma til félagsstarfa með nemendum. Frístundastjóra falið að vinna áfram að útfærslu málsins með hliðsjón af reynslunni.

2.Óskað eftir tilnefningum til Jafnréttisviðurkenningar

Málsnúmer 1909032Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Jafnréttisstofu þar sem óskað er eftir tilnefningu til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2019. Jafnréttisviðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála í víðri merkingu.
Þorvaldur Gröndal vék af fundi eftir lið 2.

3.Málefni fatlaðs fólks á Nlv - Fundargerðir þjónusturáðs

Málsnúmer 1609085Vakta málsnúmer

Farið var yfir þá stöðu sem áður hefur verið kynnt í nefndinni um að samstarfssamningur um þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra rennur út um næstu áramót. Félagsmálastjóri kynnti að verið væri að skipa starfshóp sem ætlað er að útfæra yfirfærslu málaflokksins til sveitarfélaganna.
Guðrún Helga Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps vék af fundi eftir lið 3.

4.Trúnaðarbók Félags- og tómstundanefndar 2019

Málsnúmer 1902123Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 16:45.