Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

250. fundur 11. janúar 2018 kl. 15:00 - 17:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Bjarki Tryggvason formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Þorgerður Eva Þórhallsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Gunnar M Sandholt félagsmálastjóri
  • Þorvaldur Gröndal forstöðumaður frístunda- og forvarnamála
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri málefna fatlaðs fólks
Fundargerð ritaði: Herdís Á. Sæmundardóttir, sviðsstjóri.
Dagskrá

1.Trúnaðarbók Félags- og tómstundanefndar 2018

Málsnúmer 1801050Vakta málsnúmer

Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

2.Ungmennaráð - fundargerð 22.11.2017

Málsnúmer 1712001Vakta málsnúmer

Fundargerð Ungmennaráðs frá 22. nóvember 2017 lögð fram til kynningar. Félagsmálastjóra og forstöðumanni frístunda- og íþróttamála falið að skoða nánar framgang mála sem Ungmennaráðið ályktar um.
Þorvaldur, Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

3.Landsmót UMFÍ og Landsmót UMFÍ 50 á Sauðárkróki 2018

Málsnúmer 1710012Vakta málsnúmer

Drög að samningi við UMFÍ og UMSS vegna Landsmóts, sem haldið verður í Skagafirði í sumar, lögð fram til kynningar.
Þorvaldur, Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

4.Sundlaug Sauðárkróks

Málsnúmer 1601183Vakta málsnúmer

Upplýst var um tveggja vikna lokun Sundlaugar Sauðárkróks vegna framkvæmda. Vonast er til að ekki þurfi að koma til lengri lokana á vorönn, en trúlega mun þurfa að loka nokkru lengur í haust. Reynt verður af fremsta megni að koma til móts við gesti laugarinnar og haga öllum upplýsingum eins og best verður á kosið.
Þorvaldur, Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

5.Styrkbeiðni Félag eldri borgara í Skagafirði

Málsnúmer 1709218Vakta málsnúmer

Félag eldri borgara í Skagafirði sækir um styrk vegna félagsstarfs síns að upphæð 300.000 krónur. Nefndin samþykkir að veita félaginu 280.000 króna styrk sem er hækkun um 30.000 krónur frá síðasta ári.
Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

6.Styrkbeiðni v/ félagsstarfs eldri borgara á Löngumýri

Málsnúmer 1711312Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um styrk að upphæð 200.000 krónur til greiðslu húsaleigu fyrir starf eldri borgara á Löngumýri. Nefndin samþykkir að veita styrk að upphæð 100.000 krónur vegna þessa.
Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

7.Styrkbeiðni fyrir 2018 Saman hópurinn

Málsnúmer 1711210Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Saman hópnum vegna forvarnarstarfs. Nefndin telur sér ekki fært að veita styrk að þessu sinni en óskar hópnum alls góðs í sínum störfum.
Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

8.Styrkbeiðni Stígamóta fyrir 2018

Málsnúmer 1710123Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Stígamótum vegna starfsemi samtakanna. Nefndin telur sér ekki fært að veita styrk að þessu sinni en óskar Stígamótum alls góðs í sínum störfum.
Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

9.Styrkbeiðni Aflið

Málsnúmer 1711174Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um styrk frá Aflinu á Akureyri. Nefndin samþykkir að styrkja Aflið um 100.000 krónur vegna starfsins og hvetur jafnframt til þess að samtökin heimsæki grunnskólana í Skagafirði með erindi um forvarnir í samræmi við kynningu Aflsins á starfseminni sem fram fór hér í Skagafirði s.l. haust.
Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

10.Umsókn um rekstrarstyrk fyrir 2018

Málsnúmer 1710150Vakta málsnúmer

Samtök um Kvennaathvarf sækja um rekstrarstyrk líkt og undanfarin ár. Nefndin telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni að þessu sinni en óskar samtökunum alls góðs.
Gunnar og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

11.Umsagnarbeiðni frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga

Málsnúmer 1712160Vakta málsnúmer

Kynnt var frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga sem bíður Alþingis að afgreiða. Byggðarráð sendi félags- og tómstundanefnd erindið með ósk um umsögn. Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að rita umsögn á grundvelli þeirrar kynningar og umræðna sem fram fóru á fundinum og senda nefndarmönnum til staðfestingar áður en hún verður send byggðarráði.
Gunnar, Gréta og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

12.Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir

Málsnúmer 1712159Vakta málsnúmer

Kynnt var frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir sem bíður Alþingis að afgreiða. Byggðarráð sendi félags- og tómstundanefnd erindið með ósk um umsögn. Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að rita umsögn á grundvelli þeirrar kynningar og umræðna sem fram fóru á fundinum og senda nefndarmönnum til staðfestingar áður en hún verður send byggðarráði.
Gunnar, Gréta og Herdís sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 17:10.