Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

245. fundur 21. júní 2017 kl. 15:00 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Bjarki Tryggvason formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
Starfsmenn
  • Gunnar M Sandholt félagsmálastjóri
  • Þorvaldur Gröndal forstöðumaður frístunda- og forvarnamála
Fundargerð ritaði: Gunnar M Sandholt félagsmálasjóri,
Dagskrá

1.Lengri vinnutími vinnuskólabarna 2017

Málsnúmer 1706100Vakta málsnúmer

Færri börn eru í Vinnuskólanum en áætlað var. Lögð fram tillaga forstöðumanns frístunda- og íþróttamála um að boðið verði upp á að vinnutími verði lengdur um eina viku í öllum aldursflokkum Vinnuskólans.
Nefndin ákveður að sama fyrirkomulag skuli gilda um VIT verkefnið.
Samþykkt samhljóða.

2.Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum - beiðni um slátt

Málsnúmer 1706028Vakta málsnúmer

Hestamannafélagið Skagfirðingur hefur farið þess á leit að Sveitarfélagið sjái um grasslátt á mönum á keppnissvæði hestaíþrótta að Hólum í tengslum við Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum í júlí 2017.
Félags- og tómstundanefnd telur ekki fært að verða við erindinu.

3.Trúnaðarbók félagsmál 2017

Málsnúmer 1701341Vakta málsnúmer

Afgreiddar 4 beiðnir í tveimur málum. Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 16:00.