Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

246. fundur 03. október 2017 kl. 15:00 - 17:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Bjarki Tryggvason formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
Starfsmenn
  • Gunnar M Sandholt félagsmálastjóri
  • Þorvaldur Gröndal forstöðumaður frístunda- og forvarnamála
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri málefna fatlaðs fólks
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Gunnar M Sandholt félagsmálasjóri
Dagskrá
Þorgerður E. Þórhallsdóttir áheyrnarfulltrúi boðaði forföll.

1.Rekstrarstaða málaflokka 02 og 06 fyrstu 8 mánuði ársins 2017

Málsnúmer 1709276Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstrarniðurstöður málaflokka 02 og 06 fyrstu átta mánuði ársins. Reksturinn er í jafnvægi.

2.Ábendingar vegna sérstaks húsnæðisstuðnings sveitarfélaga.

Málsnúmer 1704103Vakta málsnúmer

Lagðar fram ábendingar frá velferðarráðuneytinu vegna sérstaks húsnæðisstuðnings. Nefndin felur starfsmönnum að vinna tillögur að breyttum tekjuviðmiðum og hlutfalli sérstaks húsnæðisstuðnings af almennum húsnæðisbótum og leggja fyrir næsta fund.
Bertína Rodriguez vék af fundi að 2. dagskrárlið loknum

3.Leiðbeiningar um viðbrögð við ólöglegri eða ósiðlegri hegðun

Málsnúmer 1707132Vakta málsnúmer

Nefndin samþykkir leiðbeiningar um viðbrögð við ólöglegri/ósiðlegri hegðun í sundlaugum og öðrum íþróttamannvirkjum.
Þorvaldur Gröndal vék af fundi að loknum þriðja dagskrárlið.

4.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks á Norðurl. vestra

Málsnúmer 1610152Vakta málsnúmer

Sveitarstjórnir Akrahrepps, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Húnaþings vestra, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa gert með sér samning um sameiginlegt Þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk.
Samningurinn lagður fram til kynningar auk fundargerða samráðshóps sveitarfélaganna sem unnið hefur að gerð samningsins dagsettar 30.8. og 8.9.2017.

5.Málefni fatlaðs fólks á Nlv - Fundargerðir þjónusturáðs

Málsnúmer 1609085Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð Þjónusturáðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra, dagsett 19.09.2017 ásamt ársyfirliti 2016.

6.Viðbragðsáætlun vegna eineltis, áreitni og ofbeldis á vinnustað

Málsnúmer 1607136Vakta málsnúmer

Stefna og viðbragðsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar gegn einelti, ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni er unnin í samræmi við reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Nefndin samþykkir stefnuna og viðbragðsáætlunina og vísar málinu til byggðarráðs.

7.Öldungaráð

Málsnúmer 1709133Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samþykkt fyrir öldungaráð fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Félags- og tómstundanefnd ákvað að senda drögin til umsagnar stjórnar Félags eldriborgara í Skagafirði.

8.Reglur um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur

Málsnúmer 1703008Vakta málsnúmer

Félags og tómstundanefnd samþykkir tillögu félagsmálastjóra að breyttu orðalagi 1. mgr. 11. gr. reglnanna, sbr. bókun nefndarinnar 18. maí 2017. 1. málsgrein 11. greininar hljóðar þá: "Foreldrar geta sótt um foreldragreiðslur ef þeim stendur hvorki til boða pláss hjá dagforeldrum né í leikskóla. Foreldragreiðslur eru greiddar eftir á, frá fyrstu mánaðamótum eftir að barn nær 9 mánaða aldri."
Einnig er samþykkt að 2. gr. reglnanna verði breytt og ákvæði um ömmuleyfi og au-pair verði fjarlægt. 2. grein hljóðar þá svo: "Dagforeldri verður að hafa leyfi samkv. reglugerð nr. 907/2005."
Samþykkt og vísað til Byggðarráðs.

9.Trúnaðarbók félagsmál 2017

Málsnúmer 1701341Vakta málsnúmer

Tekin fyrir 6 erindi, niðurstaða færð í trúnaðarbók.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir vék af fundi að lokinni umfjöllun um fyrsta dagskrárlið trúnaðarbókar þar sem fjallað var um málefni fatlaðs fólks.

Fundi slitið - kl. 17:00.