Fara í efni

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi

4. fundur 24. janúar 2024 kl. 14:00 - 15:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Jón Örn Berndsen verkefnastjóri
  • Ingvar Páll Ingvarsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá

1.GAV - Hofsós grunnskóli, endurbætur hönnun

Málsnúmer 2211367Vakta málsnúmer

Farið yfir hugmyndir að breytingum vegna aðgengismála á Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi.
Samþykkt að ráðast í lyftubyggingu norðan við núverandi byggingu í samræmi við teikningar sem lagðar voru fram á fundinum. Jafnframt samþykkt að vinna að hönnun og kostnaðargreiningu á nýju leiksvæði vestan við grunnskólann, auk göngustígs að núverandi leiksvæði og nýju undirlagi á hluta leiksvæðis. Byggingarnefnd samþykkir einnig að unnið verði áfram að heildarhönnun breytinga á núverandi byggingu og viðbyggingum, þar sem horft yrði til nýs íþróttahúss vestan við hús sem fyrsta áfanga. Síðar kæmi ný viðbygging austan grunnskóla þar sem m.a. yrði nýtt mötuneyti.
Samþykkt er að bera hugmyndirnar undir starfsmenn Ráðgjafar- og greiningarstöðvar ásamt aðgengishópi sveitarfélagsins.
Jafnframt samþykkt að fela starfsmönnum að vinna drög að teikningu fyrir íþróttahús sem yrði með sambærilegan íþróttasal og þeim sem er hjá Engjaskóla, að viðbættri búningsaðstöðu, áhaldageymslu, þreksal og nauðsynlegum öðrum rýmum sem kröfur eru gerðar um (tæknirými, salerni o.s.frv.).

Fundi slitið - kl. 15:00.