Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

507. fundur 25. febrúar 2010 kl. 10:00 - 11:56 í Ráðhúsi, Skr.
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Árskóli - viðbygging - framkvæmdir og fjármögnun

Málsnúmer 0906024Vakta málsnúmer

Kynning á stöðu málsins í kjölfar samþykktar 252. fundar sveitarstjórnar frá 6. október 2009. Farið yfir og kynntar viðbótarupplýsingar sem aflað hefur verið.

2.Fyrirspurn um viðbyggingu við Árskóla

Málsnúmer 1002242Vakta málsnúmer

Lögð fram skrifleg fyrirspurn frá Gísla Árnasyni áheyrnarfulltrúa VG, um viðbyggingu við Árskóla og svar sveitarstjóra við þeim.

1. Hafa verktakar á svæðinu verið að vinna að tilboðsgerð vegna viðbyggingar við Árskóla, á vegum sveitarfélagsins?

Svar: Nei.

2. Hafa farið fram fundir milli aðila, formlegir eða óformlegir, eftir samþykkt sveitarstjórnar 6. október síðastliðinn?

Svar: Já, undirritaður hefur átt nokkra óformlega viðræðufundi með kaupfélagsstjóra til að ræða þetta mál í kjölfar samþykktar sveitarstjórnar frá 6. október s.l. Einn slíkan fund sat sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs með undirrituðum. Engir formlegir fundir hafa enn átt sér stað milli aðila, enda staðið jafnhliða yfir vinna að öflun frekari upplýsinga og umsagna, sbr. samþykkt sveitarstjórnar frá 6. okt.

3. Hefur svar borist frá hagdeild Sambands íslenskar sveitarfélaga og lánasjóði sveitarfélaga um fjárhagslega getu sveitarfélagsins vegna þessa verkefnis?

Svar: Nei, svar hefur ekki borist við þeirri beiðni sem komið var á framfæri við Hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga í kjölfar fundar sveitarstjórnar en þar var óskað eftir umsögn um áhrif framkvæmdarinnar á fjárhag og rekstur sveitarsjóðs til lengri tíma litið m.v. gefnar forsendur um hagþróun á tímabilinu. Að tillögu Gunnlaugs Júlíussonar, forstöðumanns Hagdeildarinnar var lagt upp með að skoða hvernig staðan gæti orðið m.v. ólíka spá um þróun helstu lykillstærða. Á endanum baðst Hagdeildin undan því að vinna sjálfa grunnvinnu slíkrar uppsetningar en þar á bæ eru menn tilbúnir að veita "almenna umsögn" um skýrslu þriðja aðila sem fenginn yrði til verksins. Undirritaður leitaði þá, að fenginni tillögu þar um frá Gunnlaugi, til Garðars Jónssonar hjá R3-Ráðgjöf ehf. og bað hann að taka að sér verkefnið og er skemmst frá því að segja að Garðar brást fljótt og vel við þeirri beiðni. Skýrsla hans liggur nú fyrir og verður kynnt byggðarráði á fundinum 25. febrúar. Hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið send skýrslan og er að vænta umsagnar á næstu dögum. Hvað Lánasjóð sveitarfélaga varðar, þá svara starfsmenn sjóðsins því til að sjóðurinn leggi ekki mat á lánshæfi öðruvísi en sem svar við formlegri lánsumsókn. Nánar verður gerð grein fyrir þessu og öðru er málinu tengist við sérstaka kynningu og umfjöllun um málið á fundi byggðarráðs á morgun, fimmtudaginn 25. febrúar n.k.

3.Sundlaugin Steinsstöðum

Málsnúmer 1002227Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Ferðaþjónustunni Steinsstöðum þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp vatnsrennibraut við sundlaugina á Steinsstöðum. Einnig er óskað eftir að fá núgildandi leigusamning um sundlaugina framlengdan um 2 - 5 ár.

Byggðarráð felur sveitarstjóra og tæknideild að skoða allar hliðar málsins, afla upplýsinga og leggja aftur fyrir byggðarráð.

4.UB koltrefjar ehf.

Málsnúmer 0904049Vakta málsnúmer

Lagt fram aðalfundarboð UB koltrefja ehf. Fundurinn verður haldinn í Reykjavík 25. mars 2010. Einnig lagt fram bréf frá stjórn UB koltrefja ehf um 2,5 mkr. hlutafjáraukningu í félaginu skv. heimild frá aðalfundi félagsins 27. apríl 2009. Sveitarfélagið hefur forkaupsrétt á kr. 500.000 á nafnverði til 11. mars nk.

Byggðarráð samþykkir að nýta forkaupsrétt sveitarfélagsins í hlutafjáraukningunni (20%) að upphæð kr. 500.000. Fjármagn verður flutt af útgjaldalið byggðarráðs 21890, til þessarar fjárfestingar í aðalsjóði. Auk þess samþykkir byggðarráð að Snorri Styrkársson sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Er hann jafnframt tilnefndur sem aðalfulltrúi sveitarfélagsins í stjórn og Gunnar Bragi Sveinsson til vara.

5.Umsókn um fjárstuðning til uppsetningar lyftu í Frímúrarahúsið, Borgarmýri 1

Málsnúmer 1002190Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Árna Blöndal þar sem hann vekur athygli byggðarráðs á verkefni sem verið er að hleypa af stokkunum. Um er að ræða stofnun sjóðs sem á að hafa það verkefni að kosta uppsetningu lyftu í hús Frímúrara á Sauðárkróki, en salur á efri hæð er mikið notaður við ýmsa menningarviðburði, söngskemmtanir ofl. Aðgegni aldraða og hreyfihamlaðra er afar slæmt og setur starfsemi í húsinu skorður. Innt er eftir hvort sveitarfélagið geti lagt þessu verkefni lið.

Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu.

Páll Dagbjartsson vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.

6.Góðverkadagar 2010

Málsnúmer 1002135Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Bandalagi íslenskra skáta um fjárstuðning við verkefni sem skátafélög eru að fara af stað með í öllum leik- og grunnskólum landsins ásamt mörgum fyrirtækjum. Verkefnið heitir "Góðverkadagurinn".

Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu.

Fundi slitið - kl. 11:56.