Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

462. fundur 13. janúar 2009 kl. 17:15 - 20:00 í Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki
Fundargerð ritaði: Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri
Dagskrá

1.Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki - breytingar

Málsnúmer 0812088Vakta málsnúmer

Fundur byggðarráðs á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki með heilbrigðisráðherra og fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins og Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki. Á fundinum var tilkynnt ákvörðun ráðuneytisins um að stofna eina heilbrigðisstofnun fyrir allt Norðurland. Byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar gagnrýnir harðlega hvernig ráðuneyti heilbrigðismála hefur staðið að breytingum á heilbrigðisstofnunum á Norðurlandi. Byggðaráð telur ekki að um samráðsfund hafi verið að ræða þar sem tilkynnt var ákvörðun og annað ekki til umræðu og því að mati ráðsins ekki fullnægt ákvæðum laga um samráðsskyldu ráðuneytisins í málinu. Fulltrúar sveitarfélagsins óskuðu eftir því að hefja viðræður við ráðuneytið um yfirtöku á stofnuninni m.v. fjárlagaramma ársins 2009 og þar með mæta óskum ráðuneytisins um sparnað á því ári. Því hafnaði ráðherra og sagði mögulegar viðræður eingöngu geta orðið við nýja stofnun á Norðurlandi eftir að endurskipulagning starfseminnar hafi átt sér stað. Byggðaráð harmar viðbrögð ráðuneytisins og krefst þess að ráðuneytið upplýsi nú þegar hvað felst í endurskipulagningu á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki. Byggðaráð ítrekar fyrri óskir um viðræður við ráðuneyti heilbrigðismála um úrlausnir er tryggi áfram góða og öfluga þjónustu Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki.

Fundi slitið - kl. 20:00.