Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

1013. fundur 04. maí 2022 kl. 13:00 - 14:14 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Miðbæjarkjarni á Sauðárkróki

Málsnúmer 2204079Vakta málsnúmer

Lögð fram svo hljóðandi bókun 190. fundar umhverfis- og samgöngunefndar þann 13. apríl 2022:
"Tillaga umhverfis- og samgöngunefndar varðandi miðbæjarkjarna á Sauðárkróki. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að hafin verði hugmyndavinna að skipulagi og hönnun miðbæjarsvæðis á Sauðárkróki. Í nýju Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar eru þrjú miðsvæði nefnd en það hefur verið nokkuð óljóst hvar íbúar telji miðbæinn sinn vera. Nefndin telur að skilgreina þurfi svæði í skipulagi sem sérstakan miðbæjarkjarna með það að markmiði að byggja upp miðbæjarumhverfi sem er sýnilegt og hefur aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti sem heimsækja okkur og er um leið spennandi tækifæri fyrir fjárfesta. Í vinnunni verði leitað eftir hugmyndum og tillögum í samráði við íbúa, atvinnulíf og félagasamtök.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að vísa tillögunni til byggðarráðs til umfjöllunar."
Byggðarráð fagnar og samþykkir framkomna tillögu og vísar henni til umræðu í skipulags- og byggingarnefnd.

2.Stjórnsýsluskoðun Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2021

Málsnúmer 2203144Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla KPMG frá 28. apríl 2022 varðandi stjórsýsluskoðun hjá sveitarfélaginu vegna ársins 2021.

3.Beitarhólf Ártúnum

Málsnúmer 2107076Vakta málsnúmer

Sveitarfélagið auglýsti beitarland til leigu í landi Ártúna sunnan Hofsóss. Á dagskrá er að úthluta gamla túninu vestan Siglufjarðarvegar og sunnan Hofsóssbrautar, 2,4ha. Ein umsókn barst um spilduna frá Rúnari Þór Númasyni.
Byggðarráð samþykkir að landið verði eingöngu leigt til slægna, en ekki beitar eins og auglýst var.
Byggðarráð samþykkir að fela Kára Gunnarssyni umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að bjóða umsækjanda landið til leigu með þessum breyttu forsendum.

4.Aðalgata 20b - umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2204123Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 20. apríl 2022 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra varðandi umsögn um umsókn Skala 20 ehf., kt. 491020-0590 um rekstrarleyfi, Veitingaleyfi - A Veitingahús, að Aðalgötu 20b, F2131143, Sauðárkróki. Málsnúmer embættisins er 2022-012560.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

5.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar (umhverfisvæn orkuöflun)

Málsnúmer 2204200Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 29. apríl 2022 frá nefndasviði Alþingis þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar (umhverfisvæn orkuöflun), 582. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13. maí 2022.
Byggðarráð fagnar framkomnu frumvarpi og styður framgang þess.

6.Þemavika almannavarna 28. apríl-5. maí

Málsnúmer 2204142Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 22. apríl 2022 frá Almannavörnum varðandi Þemaviku Almannavarna tímabilið 28. apríl til 5. maí 2022.

Fundi slitið - kl. 14:14.