Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

1008. fundur 22. mars 2022 kl. 11:30 - 13:23 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Samstarf um málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2203049Vakta málsnúmer

Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk frá 22. mars 2021 rann út þann 28. febrúar s.l. Sveitarstjórnir Akrahrepps, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Húnaþings vestra, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar voru samningsaðilar. Fyrir liggur að sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu og Akrahreppur vilja halda samstarfinu áfram. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að taka málið til afgreiðslu á næsta fundi.

2.Framtíðarstefnumörkun íþróttamála í Skagafirði

Málsnúmer 2203176Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 18. mars 2022 frá Ungmennasambandi Skagafjarðar varðandi tvær þingsályktunartillögur sem samþykktar voru samhljóða á 102. ársþingi UMSS þann 12. mars 2022.
Í fyrri tillögunni komu fram þakkir til Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir veittan stuðning á liðnum árum. Síðari tillagan hljóðar svo: "102. ársþing UMSS haldið í Húsi frítímans þann 12. mars 2022, hvetur Sveitarfélagið Skagafjörð að setja af stað vinnu í samvinnu við UMSS varðandi framtíðarstefnumörkun í íþróttamálum í Sveitarfélaginu Skagafirði og í framhaldi af því að hraða uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu."
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að bjóða forsvarsmönnum UMSS á næsta fund byggðarráðs.

3.Túngata 10, Hofsósi

Málsnúmer 2111221Vakta málsnúmer

Lagt fram söluyfirlit fasteignasala vegna Túngötu 10 á Hofsósi. Sala fasteignarinnar er í fjárhagsáætlun ársins 2022.
Byggðarráð samþykkir að fasteignin verði auglýst til sölu hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

4.Áhugi á forkaupsrétti vegna Laugatúns 7 n.h.

Málsnúmer 2201127Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 11. janúar 2022 frá leigjanda íbúðarinnar Laugatún 7 n.h., þar sem hann upplýsir um áhuga sinn á því að kaupa íbúðina og nýta sér forgang sinn samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Verðmat fasteignasala liggur fyrir.
Byggðarráð samþykkir að bjóða viðkomandi að nýta forkaupsrétt sinn og kaupa fasteignina á verðmati fasteignasala.

5.Lambanes Reykir C verðmat

Málsnúmer 2203125Vakta málsnúmer

Lagt fram verðmat fasteignasala á fasteigninni Lambanes Reykir C. Heimild fyrir sölu fasteignarinnar er í fjárhagsáætlun 2022.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gefa leigjanda fasteignarinnar kost á að nýta sér forkaupsrétt sinn.

6.Matur fyrir eldri borgara

Málsnúmer 2202078Vakta málsnúmer

Lögð fram svohljóðandi bókun 300. fundar félags- og tómstundanefndar: "Minnisblað um möguleika sveitarfélagsins á að bjóða eldri borgurum Skagafjarðar að kaupa hádegisverð lagt fram. Í minnisblaðinu koma fram upplýsingar um fjölda einstaklinga eldri en 67 ára í dreifbýli Skagafjarðar ásamt upplýsingum um fjölda sem þiggja félagslega heimaþjónustu sem og notendur Dagdvalar á Sauðárkróki. Hugmyndir hafa verið uppi um að hægt sé að bjóða eldri borgurum að kaupa hádegisverði í skólum í dreifbýli. Ljóst er að erfitt er að koma þessari þjónustu við í núverandi húsnæði skólanna. Áform eru uppi um breytingar á skólahúsnæðinu í Varmahlíð og á Hofsósi. Málið áfram til skoðunar. Félags- og tómstundanefnd beinir því til sveitarstjórnar að þessi þjónusta verði höfð í huga við hönnun og framkvæmd áformaðra breytinga/viðbygginga."

7.Kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar 2022

Málsnúmer 2203129Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar 2022 verði þeir sömu og í sameiningarkosningum þann 19. febrúar s.l., þ.e. Skagasel, Bóknámshús FNV, Varmahlíðarskóli, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Félagsheimilið Ketilás.

8.Fundarboð aðalfundar Lánasjóðsins 2022

Málsnúmer 2203150Vakta málsnúmer

Lagt fram aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. þann 1. apríl 2022 í Reykjavík. Athygli er vakin á því að allir sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja aðalfundinn svo og fulltrúar fjölmiðlar skv. hlutafélagalögum (nr. 2/1995). Sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins.

9.Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.)

Málsnúmer 2203111Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur 10. mars 2022. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.), 16. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 24. mars 2022.

10.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 1382011. (Íbúakosningar á vegum sveitarfélaga)

Málsnúmer 2203062Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytingar á sveitarstjórnarlögum sem nú eru til umsagnar í samráðsgátt.

11.Upplýsingapóstur frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti til kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2201199Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 18. mars 2022 frá innviðaráðuneyti til kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa.

Fundi slitið - kl. 13:23.