Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

983. fundur 29. september 2021 kl. 13:00 - 14:31 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2022 - 2025

Málsnúmer 2108116Vakta málsnúmer

Lagður fram fjárhagsrammi vegna fjárhagsáætlunar ársins 2022.
Byggðarráð samþykkir fjárhagsrammann og vísar honum til umfjöllunar og vinnslu í nefndum.

2.Tillaga - þarfagreining og hönnun á nýjum leikskóla á Sauðárkróki

Málsnúmer 2109290Vakta málsnúmer

Lögð fram svohljóðandi tillaga:
Fulltrúar Byggðalistans óska eftir að byggðaráð samþykki að farið verði í þarfagreiningu og hönnun á nýjum leikskóla á Sauðárkróki.
Áætlað var að byggja við yngra stig Ársala en við frekari skoðun kom það í ljós að það væri ill mögulegt vegna plássleysis umhverfis yngra stig Ársala. Yngra stig Ársala stenst ekki kröfur nútímans hvað varðar leikskólastarf og aðstöðu starfsmanna. Viðbygging við eldra stig Ársala mun aðeins sinna eftirspurn til skamms tíma og teljum við að mikilvægt sé að hugsa til framtíðar eða allavega næstu 20 ára við framkvæmdir við leikskóla. Litið verið til m.a. húsnæðisáætlunar og íbúðaþróunar síðastliðinna ára við þarfagreiningu og framkvæmdir á leikskóla.
Ólafur Bjarni Haraldsson, Jóhanna Ey Harðardóttir
Byggðarráð samþykkir að fela fræðslustjóra að vinna að þarfagreiningu leikskólahúsnæðis á Sauðárkróki til næstu 10-15 ára. Einnig er skipulagsfulltrúa falið að halda áfram vinnu við skoðun á hentugri staðsetningu fyrir nýjan leikskóla.

3.Beiðni um tímabundin afnot af herbergi Túngötu 2 vegna afgreiðslu bókasafns

Málsnúmer 2109222Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 15. september 2021 frá Þódísi Friðbjörnsdóttur, héraðsbókaverði, varðandi beiðni um tímabundin afnot af herbergi í kjallara Túngötu 2, Hofsósi, fyrir afgreiðslu bókasafnsins þar.
Byggðarráð samþykkir að heimila Héraðsbókasafni Skagfirðinga afnotin.

4.Aðgangur að húsnæði

Málsnúmer 2104150Vakta málsnúmer

Erindið áður á 962. fundi byggðarráðs þann 21. apríl 2021 og þá sent til umsagnar stjórnar NNV. Umsögn hefur ekki borist.
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 22. september 2021 frá Ástu Ólöfu Jónsdóttur formanni Pilsaþyts í Skagafirði. Óskar félagið eftir að fá aðstöðu til sauma, tímabundið í húsnæði sveitarfélagsins og Náttúrustofu Norðurlands vestra, Aðalgötu 2 á Sauðárkróki. Félagsskapurinn er að sauma kyrtil til afnota fyrir Fjallkonu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og er stefnt að afhendingu með viðhöfn þann 1. desember 2021.
Byggðarráð samþykkir að veita Pilsaþyti heimild til að hafa aðstöðu í sal Aðalgötu 2 til 1. desember 2021.

5.Samráð; Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu

Málsnúmer 2109289Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. september 2021, þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 184/2021, "Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu". Umsagnarfrestur er til og með 22.10.2021.

6.Boð á 5. haustþing SSNV

Málsnúmer 2109292Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 24. september 2021 frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, varðandi 5. haustþing samtakanna sem verður haldið í Félagsheimilinu Blönduósi þann 22. október n.k.

7.Ársfundur Jöfnunarsjóðs 2021

Málsnúmer 2109295Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 20. september 2021 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi ársfund Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem verður haldinn 6. október 2021 í Reykjavík.

8.Líffræðileg fjölbreytni í borgum og bæjum - skýrsla

Málsnúmer 2109288Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 24. september 2021 frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi tækniskýrslu frá samningnum um líffræðilega fjölbreytni um verndun líffræðilegrar fjölbreytni í borgum og bæjum. Skýrslan er framlag og afurð samstarfs borga og bæja víðsvegar um heim á vettvangi samningsins um leiðir til þess að efla og varðveita líffræðilega fjölbreytni í og við borgir og bæi.

Fundi slitið - kl. 14:31.