Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

970. fundur 16. júní 2021 kl. 11:30 - 12:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt að taka mál 2011087, Sundlaug Sauðárkróks 2. áfangi, inn á dagskrá fundarins með afbrigðum.

1.Kjörstaðir við Alþingiskosningar sept 2021

Málsnúmer 2106142Vakta málsnúmer

Lagt er til að svohljóðandi tillögum verði vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar:
Lagt er til að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem ráðgerðar eru 25. september 2021 verði eftirtaldir:
Skagasel, Bóknámshús FNV, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Grunnskólinn á Sólgörðum, Varmahlíðarskóli og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki
Einnig samþykkir sveitarstjórn að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna: að staðfesta kjörskrá, úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar.
Byggðarráð samþykkir tillöguna.

2.Beiðni um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 2106140Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

3.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir 2022

Málsnúmer 2105051Vakta málsnúmer

Erindinu vísað frá 89. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar. Berglind Þorsteinsdóttir safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga leggur til að gjaldskrá safnsins verði sú sama á árinu 2022 og árinu 2021.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti fyrirlagða gjaldskrá 2022 og vísaði til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar til sveitarstjórnar til staðfestingar.

4.Aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

Málsnúmer 2106059Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá forsætisráðuneytinu dagsett 28. maí 2021, til allra sveitarstjórna vegna þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur á grundvelli áætlunarinnar ráðið forvarnarfulltrúa sem kemur til meðað styðja við skólaskrifstofur sveitarfélaganna við miðlun fræðslu og forvarna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Þá vinnur Menntamálastofnun að gerð fræðsluefnis fyrir leik-, grunn-, og framhaldsskóla, sem ásamt íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundstarfi gegna lykilhlutverki við framkvæmd áætlunarinnar.
Sveitarfélög og stofnanir þeirra eru hvött til að taka höndum saman með ábyrgðaraðilum og stýrihópi forsætisráðuneytis og koma áætluninni til framkvæmdar.

5.Sundlaug Sauðárkróks - 2. áfangi

Málsnúmer 2011087Vakta málsnúmer

Vísað frá 30. fundi byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks þar sem nefndin samþykkti tillögur að áfangaskiptingu framkvæmda við seinni hluta endurbóta og uppbyggingar við Sundlaug Sauðárkróks, og vísaði þeim til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir framlagðar tillögur og felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ráðast í gerð útboða í samræmi við þær.

6.Sameining sveitarfélaga

Málsnúmer 2104151Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sátu Hrefna Jóhannesdóttir, Þorkell Gíslason og Drífa Árnadóttir úr hreppsnefnd Akrahrepps, í gegnum Teams.
Lögð fram tilboð frá fyrirtækjunum Aton.JL og RR ráðgjöf varðandi ráðgjöf, gagnaöflun og upplýsingamiðlun vegna könnunar á kostum, göllum og tækifærum sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Byggðarráð og hreppsnefnd samþykkja að taka tilboði frá RR ráðgjöf í ráðgjöf og verkefnisstjórn vegna hugsanlegrar sameiningar sveitarfélaganna Skagafjarðar og Akrahrepps.

7.Samráð; Hvítbók um aðlögun að loftslagsbreytingum - Drög að stefnu

Málsnúmer 2106112Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 9. júní 2021 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 129/2021, "Hvítbók um aðlögun að loftslagsbreytingum - Drög að stefnu". Umsagnarfrestur er til og með 24.06.2021.

8.Bensínleki við N1 Hofsósi - beiðni um leyfi til mælinga.

Málsnúmer 2102181Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 11. júní 2021 varðandi mengunartjón við Suðurbraut á Hofsósi sem Advel lögmenn rita fyrir hönd N1 ehf. Fyrirhugaðar eru rannsóknir og sýnatökur um mánaðamótin júní/júlí n.k. Óskað er eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður veiti heimild fyrir framkvæmdinni í landi sveitarfélagsins á Hofsósi þannig að taka megi sýni úr jarðvegi til nánari greiningar.

9.Fundur stjórnar Rarik með sveitarstjórnarmönnum

Málsnúmer 2106082Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 7. júní 2021 þar sem fram kemur að stjórn RARIK ásamt forstjóra og framkvæmdastjórum munu ferðast um Norðurland í ágúst og óska eftir að hitta fulltrúa sveitarfélaganna í Skagafirði á fundi þann 20. ágúst n.k.

Fundi slitið - kl. 12:30.