Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

962. fundur 21. apríl 2021 kl. 11:30 - 12:44 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá

1.Stækkun Hlíðarendavallar

Málsnúmer 2103181Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 961. fundar, 14.04. 2021. Lagt fram bréf dagsett 13. mars 2021 frá stjórn Golfklúbbs Skagafjarðar þar sem stjórnin óskar eftir viðræðum við sveitarfélagið um stækkun Hlíðarendavallar úr 9 holu velli í 12 holu völl. Stjórnarmenn Golfklúbbs Skagafjarðar komu á fundinn og skýrðu áform klúbbsins.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera drög að viljayfirlýsingu um stuðning við verkefnið og kanna hvernig málið rúmast innan skipulags.

2.Hafursstaðir - grænir iðngarðar

Málsnúmer 2104074Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. mars 2021 frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra varðandi undirbúning grænna iðngarða að Hafursstöðum. Óskað er eftir tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í verkefnateymi sem á að vinna að frumgreiningu á þörfum, vilja og getu til að taka á móti stærri verkefnum að Hafursstöðum.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Sigfús Ólaf Guðmundsson verkefnastjóra.

3.Stjórnsýsluskoðun Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020

Málsnúmer 2012205Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

4.Beiðni um upplýsingar um fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid 19

Málsnúmer 2104121Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 13. apríl 2021 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kallar eftir upplýsingum um fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19. Einnig lagður fram tölvupóstur frá ráðuneytinu dagsettur 19. apríl 2021 með ítarlegri upplýsingum um eftir hvaða upplýsingum úr A-hluta er verið að kalla. Gögnin þurfa að berast fyrir 1. júní n.k.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármaálsviðs að senda upplýsingarnar þegar þar að kemur.

5.Staða framkvæmda við sundlaugina á Sólgörðum

Málsnúmer 2104147Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð fundar um hönnun og endurbætur á Barðslaug að Sólgörðum, dagsett þann 8. apríl 2021. Fundinn sátu starfsmenn sveitarfélagsins og fulltrúi Sótahnjúks ehf., sem er rekstraraðili sundlaugarinnar.
Byggðarráð samþykkir að Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs verði tengiliður sveitarfélagsins við Sótahnjúk ehf. vegna framkvæmda við sundlaugina.

6.Aðgangur að húsnæði

Málsnúmer 2104150Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 19. apríl 2021 frá félagsskapnum Pilsaþyt í Skagafirði, sem hefur það að markmiði að efla notkun þjóðbúninga við hin ýmsu tækifæri. Félagið hefur verið að velta fyrir sér samastað fyrir félagið þar sem töluvert umfang fylgir verkefnum félagsmanna. Borin er upp sú ósk hvort félagið gæti fengið aðstöðu í Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að senda erindið til umsagnar stjórnar Náttúrustofu Norðurlands vestra.

7.Hleðslustöðvar í dreifbýli

Málsnúmer 2104146Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. apríl 2021 frá Orkusetri varðandi hraðhleðslustöðvar til að þjónusta rafdrifin ökutæki og stöðu þeirra mála í sveitarfélaginu. Orkusetur er tilbúið að styðja við uppsetningu slíkra stöðva svo framalega að þeir verði opnar almenningi.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga.

8.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun

Málsnúmer 2104126Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 15. apríl 2021 frá nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku), 709. mál.

9.Umsagnarbeiðni; Þingsályktunartillaga um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands

Málsnúmer 2104127Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 15. apríl 2021 frá nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707. mál.

10.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsnúmer 2104137Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 15. apríl 2021 frá nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi), 708. mál.

11.Samráð; Stafrænt Ísland - stefna um stafræna þjónustu

Málsnúmer 2104110Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. apríl 2021 þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 99/2021, "Stafrænt Ísland - stefna um stafræna þjónustu". Umsagnarfrestur er til og með 28.04.2021.

Fundi slitið - kl. 12:44.